Segja samningamenn ríkisins hafa fært kröfuhöfum eignir á silfurfati

Meirihluti fjárlaganefndar hefur birt skýrslu um „einkavæðingu bankanna hina síðari“. Þar eru settar fram ásakanir um að samningamenn ríkisins hafi fært kröfuhöfum bankanna á silfurfati. Þetta hafi skapað 296 milljarða áhættu á ríkissjóð.

Frá blaðamannafundi með Guðlaugi Þór Þórðarsyni og Vigísi Hauksdóttur í dag.
Frá blaðamannafundi með Guðlaugi Þór Þórðarsyni og Vigísi Hauksdóttur í dag.
Auglýsing

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar Alþingis hefur birt skýrslu sem gerð var fyrir hann og á að varpa ljósi á „hvernig kröfu­höfum voru færðir íslensku bank­arnir með mik­illi með­gjöf frá skatt­greið­endum á með gríð­ar­legri áhættu fyrir rík­is­sjóð árið 2009.“

Í frétta­til­kynn­ingu segir að skýrslan taki „af allan vafa um áhættu skatt­greið­enda sem áttu sér stað við afhend­ingu bank­anna til kröfu­hafa. Rík­is­sjóður tók á sig 296 millj­arða króna áhættu í þágu kröfu­haf­anna.“

Skýrslan var kynnt á fundi með Vig­dísi Hauks­dótt­ur, for­manni fjár­laga­nefnd­ar, og Guð­laugi Þór Þórð­ar­syni, vara­for­manni nefnd­ar­inn­ar, í dag. Þar kom fram að þessi áhætta hafi þó ekki skilað rík­is­sjóði eða skatt­greið­endum tapi því að hin ætl­aða með­gjöf hafi náðst til baka í stöð­ug­leika­fram­lög­unum sem kröfu­hafar föllnu bank­anna greiddu.

Auglýsing

Á fund­inum var einnig greint frá því að nefnd­ar­menn­irnir sem hafi staðið að gerð skýrsl­unnar hafi sjálfir unnið hana að hluta ásamt starfs­mönnum nefnd­ar­inn­ar. Auk þess hafi utan­að­kom­andi sér­fræð­ingar komið að gerð skýrsl­unnar en ekki var greint frá því hverjir þeir væru. Heild­ar­kostn­aður við gerð hennar er 90 þús­und krónur og greiddu Vig­dís og Guð­laugur Þór þann kostnað úr eigin vasa.

Hægt er að lesa skýrsl­una í heild sinni hér og fylgi­skjöl hennar hér.

Sam­hljóma ásök­unum Víg­lundar Þor­steins­sonar

Skýrslan leggur út frá því að sú ákvörðun fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins árið 2009 að semja við kröfu­hafa föllnu bank­anna að eign­ast hlut í þeim nýju gegn því að fjár­magna þá að hluta, hafi gengið gegn neyð­ar­lög­un­um, hafi hunsað stof­nefna­hags­reikn­ing sem Fjár­mála­eft­ir­litið hafi gefið út fyrir nýju bank­anna þrjá og tekið fram fyrir hend­urnar á eft­ir­lit­inu. Með þessu hafi Stein­grímur J. Sig­fús­son, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, gloprað „niður gríð­ar­legum ávinn­ing­i.“ Guð­laugur Þór til­tók á blaða­manna­fund­inum í dag að þessi ávinn­ingur hafi þó náðst til baka með stöð­ug­leika­fram­lag­inu sem kröfu­hafar Glitn­is, Lands­banka Íslands og Kaup­þings hafi greitt snemma á þessu ári.

Þær ásak­anir sem fram eru settar í skýrsl­unni er sam­hljóma þeim sem Víglundur Þor­steins­son hefur sett fram þrí­veg­is, og stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd hefur þegar rann­sak­að, og hafnað með skýrslu sem Brynjar Níels­son vann í fyrra. Kjarn­inn hefur fjallað ítar­lega um ásak­anir Víg­lundar.

Þó fylgja með mikið magn fylgi­skjala, meðal ann­ars áður óbirtra fund­ar­gerða stýri- og sam­ræm­inga­nefnda stjórn­valda, sem ekki hafa komið fyrir augu almenn­ings áður.

Í skýrsl­unni segir að fylgi­skjölin sýni „und­ar­legan ótta samn­inga­manna við kröfu­haf­ana og van­mátt­ar­kennd gagn­vart hátt laun­uðum lög­fræð­inga­her þeirra. Þau sýna sér­kenni­lega áráttu íslenska samn­inga­fólks­ins til að gæta hags­muna við­semj­enda sinna og tryggja að þeir bæru ekki skarðan hlut frá borð­i.“

Á blaða­manna­fund­inum viku bæði Vig­dís og Guð­laugur Þór sér undan spurn­ingum um að í skýrsl­unni fælist ásökun um lög­brot eða illan ásetn­ing þeirra sem unnu að því að semja við kröfu­hafa gömlu bank­anna um fjár­mögnun hinna nýju. 

Í skýrsl­unni segir hins vegar að samn­ings­gerðin hafi gengið alfarið út á að frið­þægja kröfu­haf­anna með því að afhenda þeim eign­ar­hald á bönk­un­um, varpa allri ábyrgð á íslenska skatt­greið­endur og falla frá tug­millj­arða arð­greiðsl­um, end­ur­greiðslum og vaxta­greiðsl­um. „Samn­inga­menn fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins og Seðla­bank­ans afhentu kröfu­höfum eignir á silf­ur­fati og afsöl­uðu meira og minna öllum ávinn­ingi rík­is­ins af þeirri ábyrgð sem það tók á sig frá hruni bank­anna.“

Kjarn­inn mun fjalla nánar um skýrsl­una á morgun og greina inni­hald henn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None