Sigmundur: Steig til hliðar um tíma á meðan hlutirnir skýrðust

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að hann hafi beðið Sigurð Inga Jóhannsson að fara í hlutverk forsætisráðherra fyrir sig á meðan hann steig til hliðar um tíma. Hann heldur því fram að ummerki um innbrot hafi fundist í tölvu hans.

Sigmundur Davíð
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir að hann hafi tekið þá ákvörðun að „stíga til hliðar um tíma á meðan hlut­irnir væru að skýrast“ þegar hann sagði af sér emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra þann 5. apríl síð­ast­lið­inn. Þetta kom fram í við­tali við Sig­mund Davíð í þætt­inum Reykja­vík síð­degis á Bylgj­unni í gær. 

Sig­mundur marg­ít­rek­aði í við­tal­inu að Sig­urður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður flokks­ins og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hafi lofað að fara ekki gegn honum í for­manns­emb­ættið í flokkn­um. „Þegar ég á sínum tíma ákvað að það væri rétt að stíga til hliðar um tíma, á meðan að hlut­irnir væru að ­skýrast, og ræddi við Sig­urð Inga og bað hann um það að fara í þetta hlut­verk fyrir mig á meðan – að verða for­sæt­is­ráð­herra – þá ­sagði ég ein­göngu, ég sagð­ist treysta honum fyrir þessu og bæð­i ekki um annað en að hann leyfði mér að fylgj­ast með gangi mála og svo vissi ég, sem hann hefði svo oft sagt við mig áður, að hann myndi aldrei nýta þá stöðu til að fara gegn mér,“ sagði Sig­mund­ur. Hann sagði að eftir þetta sam­tal hafi þeir Sig­urður Ingi tek­ist í hendur og fall­ist í faðma.

Sig­mundur Davíð sagði einnig að hann von­að­ist til þess að sem flestir yrðu vinir á flokks­þingi flokks­ins í byrjun októ­ber. „Það var synd að við skildum ekki ná að klára kjör­tíma­bilið og ­klára síð­ustu fjár­lög­in, sem maður batt auð­vitað mjög miklar vonir við, en þá skiptir þeim mun meira máli að flokk­ur­inn nái að stilla saman strengi og koma með öfl­uga stefnu inn í kosn­ing­arn­ar.“

Auglýsing

Segir sann­reynt að brot­ist hafi verið í tölv­una

Sig­mundur Davíð var einnig spurður um þá full­yrð­ingu sína að brot­ist hafi verið inn í tölvu hans. Hann var spurður að því hvort það hafi verið sann­reynt og svar­aði „Já. Mér­ barst póstur sem var lát­inn líta út fyrir að vera frá manni sem ég þekki, sem hafði svo ekki sent póst­inn og í ljós kom að við­hengið sem í honum var var svona njósn­a­for­rit til að fara inn í tölvu. Þetta kom í ljós eftir að ég hafði látið tækni­menn í ráðu­neyt­inu eða rekstr­ar­fé­lagi stjórn­ar­ráðs­ins til að ­skoða tölv­una en það var ekk­ert auð­vitað hægt að átta sig á því hversu miklum upp­lýs­ingum við­kom­andi hefði náð. Þeir ­sögðu mér bara að það eina örugga fyrst að þetta væri svona væri að skipta um harða diskinn í tölv­unn­i.“ 

Þá var hann spurður á ný hvort þetta hafi verið stað­fest af „manni í ráðu­neyt­inu“ og svar­aði aftur ját­andi. „Þessir tækni­menn sem skoð­uðu þetta fyrir mig sögðu að þetta væri ein­hvers konar vírus eða for­rit af þess­ari gerð, það var hins vegar ekki hægt að sjá hversu mikið það hefði virk­að.“ 

Þá var hann spurður hvort hann hefði ekki til­kynnt málið til lög­reglu. „Nei ég gerði það nú ekki enda sko er maður ýmsu vanur úr þessu í póli­tík­inni og hafði fengið þau ráð, ekki bara út af þessum stóru málum sem við var að eiga á þessum tíma heldur bara al­mennt að við ættum að gera ráð fyrir því ráð­herrar og ­jafn­vel þing­menn almennt, að allt sem við settum í tölvu­póst­ væri les­ið.“ 

Rekstr­ar­fé­lagið segir engin ummerki um inn­brot

Fram­kvæmda­stjóri Rekstr­ar­fé­lags stjórn­ar­ráðs­ins stað­festi það hins vegar í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans í gær að engin stað­fest ummerki um inn­brot hefðu fund­ist í tölvu Sig­mundar Dav­íðs við skoð­un. Rekstr­ar­fé­lagið hefur umsjón með stað­ar­neti Stjórn­ar­ráðs­ins og undir það fellur tölva for­sæt­is­ráð­herra.  Þann 1.apríl 2016 barst félag­inu beiðni frá for­­sæt­is­ráð­herra um að skoða tölvu ráð­herra vegna rök­studds gruns hans um mög­u­­legt inn­­brot. Við ítar­­lega leit fund­ust ekki stað­­fest ummerki að inn­­brot hafi átt sér stað,“ segir í svari Guð­­mundar Hall­­dórs Kjærne­­sted, fram­­kvæmda­­stjóra rekstr­­ar­­fé­lags­ins, við fyr­ir­­spurn Kjarn­ans. 

Fyrr í gær hafði Vísir greint frá því að inn­­brot í tölvu for­­sæt­is­ráð­herra hefði ekki verið til­­kynnt til rík­­is­lög­­reglu­­stjóra, sem fer með brot gegn stjórn­­­­­skipan rík­­­is­ins og æðstu stjórn­­­völdum þess.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None