Lilja Alfreðsdóttir íhugar varaformannsframboð

Lilja Alfreðsdóttir og Sigurður Ingi
Auglýsing

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra íhugar að bjóða sig fram til vara­for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hún styður núver­andi for­ystu flokks­ins og flokks­for­mann­inn Sig­mund Davíð Gunn­nlaugs­son til áfram­hald­andi setu en seg­ist hafa fengið áskor­anir um að bjóða sig fram. Þetta kom fram í við­tali við hana í Bít­inu í morg­un.

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, greindi frá því á mið­stjórn­ar­fundi flokks­ins um helg­ina að hann myndi ekki sækj­ast eftir því að vera vara­for­maður flokks­ins áfram vegna sam­skipta­erf­ið­leika í for­ystu hans. Þar átti hann við sam­skipti sín við Sig­mund Dav­íð. Margir hafa skorað á Sig­urður Inga að bjóða sig fram til for­manns gegn Sig­mundi Davíð og hann hefur neitað að svara því hvort hann verði við þeim áskor­unum í við­tölum á liðnum dög­um. Áður hafði hann sagt að mót­fram­boð gegn Sig­mundi Davíð kæmi ekki til greina.

Lilja er annar ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins sem hefur opnað á mögu­legt vara­for­manns­fram­boð í dag, en Gunnar Bragi Sveins­son gerði slíkt hið sama í við­tali við Frétta­blaðið sem birt­ist í morg­un. Bæði Gunnar Bragi og Lilja styðja Sig­mund Davíð til að gegna for­mennsku í Fram­sókn­ar­flokknum áfram og telj­ast til hans helstu stuðn­ings­manna. Lilja hefur unnið náið með Sig­mundi Davíð að stórum málum og var tíma­bundið verk­efna­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyti hans. Hún kom inn í rík­is­stjórn í apríl sem utan­þings ráð­herra eftir að Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra í kjöl­far Wintris-­máls­ins. 

Auglýsing

Ljóst er að stuðn­ingur við Sig­urð Inga sem næsta for­mann flokks­ins er sífellt að aukast og í gær steig Guðni Ágústs­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og enn mik­ill áhrifa­maður innan hans, fram og hvatti Sig­mund Davíð til að stíga til hlið­ar. Að mati Guðna eru það hags­munir flokks­ins að Sig­urður Ingi leiði hann inn í kom­andi kosn­ing­ar, sem verða 29. októ­ber næst­kom­andi.

Kosið verður um for­ystu Fram­sókn­ar­flokks­ins á flokks­þingi sem fram fer í byrjun októ­ber. Einn hefur þegar til­kynnt að hann sæk­ist eftir for­mennsku utan sitj­andi for­manns. Það er Svein­björn Eyj­ólfs­son, for­stöðu­maður Nauta­stöðvar Bænda­sam­tak­anna. Hann var aðstoð­ar­maður Guðna Ágústs­sonar þegar hnan var land­bún­að­ar­ráð­herra á árum áður.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None