Sigmundur Davíð skilur ekki æsing yfir búvörusamningum

sigmundur davíð
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, skilur ekki að sumir æsi sig yfir nýsam­þykktum búvöru­samn­ing­um. Í stöðu­upp­færslu á Face­book-­síðu Sig­mundar Dav­íðs segir að um sé að ræða 13 millj­arða króna á ári í neyt­enda­styrki sem skili sér að miklu leyti aftur til rík­is­ins, lækki verð á inn­lendri mat­vöru, við­haldi und­ir­stöðu byggðar og ferða­þjón­ustu um allt land, skapi þús­undir starfa, trggi nýt­ingu auð­linda og fram­leiðslu heil­næmra og góðra mat­væla og spari 40-50 millj­arða króna á gjald­eyri á ári. „Ekki skamm­ast menn yfir kjara­samn­ingum við aðrar stéttir og þó hafa bændur ekki fengið jafn miklar kjara­bætur og aðrar stétt­ir. Það er helst það sem þarf að bæta“, segir Sig­mund­ur.

Búvöru­­samn­ing­­arnir voru sam­­þykktir á þingi í gær. 19 þing­­menn greiddu atkvæði með þeim en sjö sögðu nei. Alls sátu 16 þing­­menn hjá, sjö voru með skráða fjar­vist og 14 voru fjar­ver­andi án skýr­ing­­ar. Einn þeirra sem var fjar­ver­andi án skýr­ingar var Sig­mundur Dav­íð.

Þeir þing­­menn sem greiddu atkvæði með samn­ingnum eru allir frá Fram­­sókn­­ar­­flokki (12 tals­ins) og Sjálf­­stæð­is­­flokki (sjö tals­ins). Einn þeirra er Vil­hjálmur Bjarna­­son, sem sagði í febr­­úar að hann gæti ekki stutt samn­ing­anna eins og þeir voru þá.

Auglýsing

Tíu ára samn­ingur upp á 132 millj­arða króna styrki

Líkt og kom fram í frétta­skýr­ingu á Kjarn­anum fyrr í dag eru samn­ing­arnir til tíu ára. Greiðslur úr rík­­is­­sjóði vegna samn­ings­ins nema 132 millj­­örðum króna á samn­ings­­tím­an­um, eða að með­­al­tali 13,2 millj­­arðar króna á ári. Auk þess eru samn­ing­­arnir tvö­­falt verð­­tryggð­­ir. Þ.e. þeir taka árlegum breyt­ingum í sam­ræmi við verð­lags­­upp­­­færslu fjár­­laga og eru „leið­rétt­ir“ ef þróun með­­al­tals­­vísi­­tölu neyslu­verðs verður önnur en verð­lags­­for­­sendur fjár­­laga á árinu.  

Í samn­ing­unum er stefnt að því að kvóta­­­kerfi í mjólk­­­ur­fram­­­leiðslu og sauð­fjár­­­­­rækt verði lagt nið­­­ur. Hins vegar hefur verið ákveðið að halda núver­andi stöðu óbreyttri um ein­hvern tíma og setja ákvörðun um afnám kvóta­­­kerf­is­ins í atkvæða­greiðslu meðal bænda árið 2019. 

Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands vann skýrslu um mjólk­ur­fram­leiðslu­kerfið á Íslandi, sem fest er í sessi í búvöru­samn­ing­un­um, í fyrra. Nið­ur­staða hennar var sú að íslenskir neyt­endur hafi þurft að borga átta millj­örðum krónum meira fyrir fram­leiðslu á mjólk inn­an­lands heldur en ef hún væri flutt inn á árunum 2011-2013. Nið­ur­staða skýrsl­unnar var mjög skýr: Íslenska kerfið er mein­gallað og afar kostn­að­­­ar­­­samt fyrir ríkið og neyt­end­­­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None