Einn nefndarmaður meirihlutans hefur ekki lýst yfir stuðningi við skýrslu Vigdísar

Varaformaður og formaður fjárlaganefndar kynntu skýrsluna á fundi með fjölmiðlum á mánudag.
Varaformaður og formaður fjárlaganefndar kynntu skýrsluna á fundi með fjölmiðlum á mánudag.
Auglýsing

Fimm nefnd­ar­menn í  fjár­laga­nefnd styðja gerð skýrslu Vig­dísar Hauks­dóttur og Guð­laugs Þórs Þórð­ar­sonar um það sem þau kalla „Einka­væð­ing bank­anna hin síð­ar­i“. Einn þing­maður stjórn­ar­flokk­anna sem situr í fjár­laga­nefnd hefur ekki lýst yfir stuðn­ingi við skýrslu­gerð­ina og vill fá að kynna sér málið bet­ur. Það er Val­gerður Gunn­ars­dótt­ir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Aðrir nefnd­ar­menn stjórn­ar­flokk­anna en Vig­dís og Guð­laugur Þór komu ekki að gerð skýrsl­unnar eða vinnu við hana með beinum hætti. Frá þessu er greint á mbl.­is.

Þar segir að Ásmundur Einar Daða­son, Páll Jóhann Páls­son og Har­aldur Bene­dikts­son styðji gerð skýrsl­unnar auk Vig­dísar og Guð­laugs Þórs. Því styðji fimm af níu með­limum fjár­laga­nefndar gerð skýrsl­unn­ar. Har­aldur segir að aðrir nefnd­ar­menn hafi verið „ágæt­lega upp­lýst um það hvað þau voru að gera þó við höfum ekki tekið beina þátt í vinn­unn­i.“

Í tölvu­pósti sem Vig­dís ætl­aði að senda á Pál Jóhann, en sendi þess í stað á Jóhann Pál Jóhanns­son, blaða­mann Stund­ar­inn­ar, í fyrra­dag kemur skýrt fram að meiri­hluti fjár­laga­nefndar hafi fengið skýrsl­una senda á sunnu­dag, degi áður en hún var kynnt fjöl­miðl­um. Minni­hlut­inn hafði ekki fengið að sjá skýrsl­una á aþeim tíma­punkti. Í tölvu­póst­inum segir að til stæði að taka málið úr fjár­laga­nefnd í gær, mið­viku­dag, og að þau ætl­uðu að gera „hana að þing­skjali með nöfnum okkar í meiri­hlut­anum á.“

Auglýsing

Skýrslan var ekki afgreidd úr fjár­laga­nefnd í gær þar sem minni­hluti hennar neit­aði að taka hana til efn­is­legrar umræðu fyrr en að spurn­ingum um gerð hennar hafði verið svar­að. Á meðal þess sem minni­hlut­inn vildi fá að vita var hver hefði skrifað skýrsl­una og hverjir hefðu komið að gerð henn­ar. Á kynn­ing­ar­fundi með fjöl­miðlum á mánu­dag sagði Vig­dís að kostn­aður við skýrsl­una hefði verið 90 þús­und krónur og að hún og Guð­laugur Þór hefðu greitt hann úr eigin vasa. Það er eins­dæmi í íslenskri þing­sögu að nefnd­ar­menn greiði fyrir kostnað vegna skýrslu­gerðar sem er sögð vera gerð í nafni meiri­hluta þing­nefnd­ar.

Ásak­anir um frið­þæg­ingu gagn­vart kröfu­höfum

Skýrslan var kynnt í mánu­dag. Hún er í öllum meg­in­at­riðum end­­ur­­tekn­ing á þeim ásök­unum sem Víglundur Þor­­steins­­son hefur lagt fram þrí­­­vegis á und­an­­förnum árum. Þeim ásök­unum hefur verið hafnað af þeim ein­stak­l­ingum sem þær bein­­ast að, þeim stofn­unum sem komu að mál­inu og í áliti sem unnið var fyrir stjórn­­­skip­un­­ar- og eft­ir­lits­­nefnd fyrir rúmu einu og hálfu ári síð­­­an.

Sam­­kvæmt ásök­un­unum ákvað rík­­is­­stjórn Jóhönnu Sig­­urð­­ar­dótt­­ur, og sér­­stak­­lega fjár­­­mála­ráðu­­neytið undir stjórn Stein­gríms J. Sig­­fús­­son­­ar, í sam­­starfi við emb­ætt­is­­menn og Seðla­­banka Íslands, að hefja aðför gegn neyð­­ar­lög­unum í febr­­úar 2009 með það að mark­miði að færa kröf­u­höfum föllnu bank­anna betri end­­ur­heimt­­ir. Í þess­­ari aðför var ákveðið að hundsa þau drög að stof­­nefna­hags­­reikn­ingum nýju bank­anna þriggja sem birt voru á heima­­síðu Fjár­­­mála­eft­ir­lits­ins (FME) 14. nóv­­em­ber 2008. Í skýrsl­unni er síðan reiknað út að rík­­is­­sjóður hafi tekið á sig 296 millj­­arða króna í áhættu í þágu kröf­u­hafa með þessum aðgerð­­um.

Í frétta­til­kynn­ingu segir að skýrslan taki „af allan vafa um áhættu skatt­greið­enda sem átti sér stað við afhend­ingu bank­anna til kröf­u­hafa.[...]Ekki verður önnur ályktun dregin en að samn­inga­­gerðin afi að stórum hluta gengið út á að frið­­þægja kröf­u­haf­ana með því að afhenda þeim eign­­ar­hald á bönk­­un­­um.“

Stein­grímur J. Sig­fús­son, sem er aðal­skot­mark skýrsl­unn­ar, hefur sagt að vinnu­brögðin og ásetn­ing­ur­inn á bak við hana dæmi sig algjör­lega sjálf. „Og þetta sem núna er að koma í ljós nátt­úr­lega í fyrsta lagi sannar það að vinnu­brögðin voru for­kast­an­leg. En það sem er öllu ónota­legra er ein­hvern veg­inn ásetn­ing­ur­inn sem greini­lega á bak­við ligg­ur, að reyna að vega að mönnum næstum því að segja úr laun­sátri," sagði Stein­grímur við RÚV í gær.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um skýrsl­una í frétta­skýr­ingu á þriðju­dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None