Sigmundur Davíð segir Sigurð Inga hafa svikið loforð við sig

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist hafa beðið Sig­urð Inga Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra um tvennt þegar hann tók við emb­ætt­inu af hon­um. Ann­ars vegar að halda sér upp­lýstum um gang mála og hins vegar að bjóða sig ekki fram gegn honum í for­manns­kjöri í Fram­sókn­ar­flokkn­um. Hvor­ugt hafi gengið eft­ir. Sig­mundur Davíð segir að ákvörðun Sig­urðar Inga að bjóða sig fram gegn honum hafi valdið honum von­brigðum og að hann sé slegin yfir henni. Þetta kom fram í við­tali við Sig­mund Davíð í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Sig­urður Ingi til­kynnti í kvöld­fréttum RÚV í gær að hann ætl­aði að bjóða sig fram til for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins gegn Sig­mundi Dav­íð. Ástæðan væri ólga í for­ystu flokks­ins. Hann bætti svo við í við­tali í Viku­lok­unum í morgun að Sig­mundi Davíð hefði ekki tek­ist að end­ur­heimta traust flokks­manna. Þar hafn­aði Sig­urður Ingi því einnig að hann hefði lofað Sig­mundi Davíð því að bjóða sig ekki fram gegn hon­um.

Í fréttum Stöðvar 2 sagði Sig­mundur Davíð að frá þeim tíma sem hann sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra og Sig­urður Ingi tók við hafi þeir tveir nán­ast ekk­ert fund­að. Sig­urður Ingi hefði hins vegar fundað með leið­togum allra ann­arra flokka. Sig­mundur Davíð sagð­ist hafa gengið á eftir fundum og óskað eftir fundum þar sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins væri með þeim. Það hafi ekki gengið eft­ir.

Auglýsing

Sig­mundur Davíð end­ur­tók einnig fyrri skoðun um að Wintris-­mál­ið, sem varð til þess að hann sagði af sér emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra, hefði verið árás þar sem mark­miðið hefði verið að koma honum úr starf­i. 

Tveir sitj­andi þing­menn hafa lýst yfir stuðn­ingi við Sig­urð Inga eftir að hann til­kynnti um for­manns­fram­boð. Eygló Harð­ar­dótt­ir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, sagði í stöðu­upp­færslu á Face­book fyrr í dag að hún myndi bjóða sig fram til vara­for­manns ef Sig­urður Ingi yrði nýr for­mað­ur. Þá hefur Karl Garð­ars­son, annar leið­toga Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík, lýst yfir stuðn­ingi við Sig­urð Inga.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None