Sigurður Ingi hafnar því að hafa lofað að bjóða sig ekki fram gegn Sigmundi

ingsetning-hausti-2015_21092466580_o.jpg
Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra segir að hann hefði kosið að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, skýrði aflands­fé­laga­mál sín og eft­ir­mál þeirra með öðrum hætti en hann hefði gert. Hann segir skiptar skoð­anir innan flokks­ins hvort að Sig­mundi Davið hafi tek­ist að end­ur­reisa traust sitt á meðal Fram­sókn­ar­manna og hafnar því að hafa lofað Sig­mundi Davíð að bjóða sig ekki fram gegn hon­um. Þetta kom fram í við­tali við Sig­urð Inga í Viku­lok­unum í dag. 

Sig­urður Ingi lýsti því yfir í gær að hann ætl­aði að bjóða sig fram til for­manns flokks­ins gegn Sig­mundi Dav­íð. Það geri hann vegna fjölda­margra áskor­ana sem honum hafi borist á liðnum vikum og vegna þeirrar ólgu sem sé innan flokks­ins vegna stöðu Sig­mundar Dav­íðs. 

Sú ólga hefur auk­ist á und­an­förnum dög­um, sér­stak­lega eftir frammi­stöðu Sig­mundar Dav­íðs í leið­toga­þætti á RÚV á fimmtu­dags­kvöld. Þar hafn­aði hann því alfarið að ástæður þess að kosið verði í októ­ber en ekki næsta vor teng­ist afsögn hans sem for­sæt­is­ráð­herra í apr­íl ­síð­ast­liðn­um, í kjöl­far Wintris-­máls­ins. 

Auglýsing

Sig­urður Ingi sagði í Viku­lok­unum að það hafi engum dulist að það væru skiptar skoð­anir innan Fram­sókn­ar­flokks­ins um þær útskýr­ingar sem Sig­mundur Davíð gaf í leið­toga­þætt­in­um. Hann segir einnig að for­mann­inum hafi ekki tek­ist að end­ur­reisa traust sitt á meðal allra flokks­manna. 

Aðspurður hvort að það hafi verið full­reynt hvort að Sig­mundi Davíð tæk­ist að end­ur­reisa traust sitt sem for­manns sagði Sig­urður Ingi að hann hefði lagt sig allan fram við það, á því tíma­bili sem hann hefði gegnt starfi for­sæt­is­ráð­herra, að skapa svig­rúm fyrir Sig­mund Davíð til að gera það, skapa ró í flokknum og að koma í veg fyrir að fylk­ingar myndu mynd­ast innan Fram­sókn­ar. Það hafi hann meðal ann­ars gert með­ ­trausts­yf­ir­lýs­ing­um á for­mann­inn. Á síð­ustu vikum hafi hins vegar orðið ljóst að ætl­un­ar­verk Sig­mundar Dav­íðs um að end­ur­reisa traust hafi ekki tek­ist. 

Sig­urður Ingi sagði enn fremur að hann hafi ekki gefið Sig­mundi Davíð lof­orð um að bjóða sig ekki fram gegn hon­um, líkt og Sig­mundur Davíð hefur haldið fram. Hann hafi til­kynnt for­mann­inum um ætlun sína að bjóða sig fram sím­leiðis áður en að hann gerði slíkt opin­ber­lega í kvöld­fréttum RÚV í gær. Sig­urður Ingi sagði að Sig­mundur Davíð hefði lýst yfir von­brigðum sínum með ákvörðum for­sæt­is­ráð­herr­ans.

Sig­urður Ingi sagð­ist hafa ákveðin skiln­ing á þeim sjón­ar­miðum fólks sem telur að Sig­mundur Davíð hafi ekki gefið nægi­lega traustar eða eðli­legar skýr­ingar á Wintris-­mál­in­u. „Ég hefði kosið að hann hefði gert það með öðrum hætti. “

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None