Hvert atkvæði Davíðs kostaði rúmlega 1.100 krónur

Davíð Oddsson
Auglýsing

Davíð Odds­son, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sum­ar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­un­um, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magna­son greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6 pró­sent þeirra og lenti í þriðja sæti. Guðni Th. Jóhann­es­son, sem var kjör­inn for­seti Íslands með 39,1 pró­sent atkvæða, greiddi 352 krónur fyrir hvert atkvæði sem honum var greitt. Halla Tóm­as­dótt­ir, sem lenti í öðru sæti í kosn­ing­un­um, borg­aði minnst þeirra fjög­urra efstu fyrir hvert greitt atkvæði, eða 175 krón­ur. Hún hlaut 27,9 pró­sent atkvæða og varð önnur í kjör­inu. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Frestur fram­bjóð­enda til að skila inn yfir­liti yfir kostnað og styrki vegna fram­boða sinna til Rík­is­end­ur­skoð­unar rann út í gær. Davíð Odds­son rak dýr­ustu kosn­inga­bar­átt­una og eyddi sam­tals tæp­lega 28 millj­ónum króna í hana. Þar af eyddi Davíð rúm­lega ell­efu millj­ónum króna úr eigin vasa auk þess sem eig­in­kona hans styrkti fram­boðið um 400 þús­und krón­ur. Engin hinna fram­bjóð­end­anna eyddi meira en tveimur millj­ónum króna af eigin fé í bar­átt­una.

Ein­stak­lingar og félög tengd eig­endum og stjórn Árvak­urs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, voru áber­andi í hópi styrkj­enda fram­boðs­ins. Þar var einnig að finna félag tengt Eyþóri Arn­alds, og félag í eigu Ara Edwald, for­stjóra Mjólk­ur­sam­söl­unn­ar. Þá gaf Kaup­fé­lag Skag­firð­inga Davíð hámarks­fram­lag upp á 400 þús­und krónur auk þess sem kaup­fé­lags­stjóri þess Þórólfur Gísla­son, gaf sömu upp­hæð í eigin nafni. Krist­ján Lofts­son, útgerð­ar­maður og einn stærsti eig­andi HB Granda, gaf einnig 400 þús­und krón­ur.

Auglýsing

Guðni Th. hafði skilað sínu upp­gjöri nokkru fyrr en flestir hinna fram­bjóð­end­anna. Hann eyddi alls um 25 millj­­ónum króna í sitt fram­­boð. Kostn­aður við fram­boð Höllu nam um níu millj­ónum króna og Andri Snær eyddi um 15 millj­ónum króna í sína bar­áttu. Aðrir fram­bjóð­endur ráku mun ódýr­ari kosn­inga­bar­áttu sem kost­aði ein­ungis nokkur hund­ruð þús­und hver.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None