ingsetning-hausti-2015_21093519859_o.jpg
Auglýsing

Heim­sóknir til heim­il­is­lækna eru gjald­frjálsar í Dan­mörku og Bret­landi, á meðan að sjúk­lingar greiða fast gjald í Sví­þjóð rétt eins og á Íslandi. Þetta kemur fram í stað­reynda- og sam­fé­lags­vakt Vís­inda­vefs­ins, sem kann­aði ummæli Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar heil­brigð­is­ráð­herra í nýlegum umræðu­þætti á RÚV. 

Krist­ján Þór sagði: „En ég hef skoðað þetta mjög víða. Ég hef hvergi rek­ist á neitt land hér í, ekki einu sinni næsta nágrenni við okk­ur, sem að við horfum nú mjög til, þar sem að heim­ilin greiða ekki ein­hvern þátt í heil­brigðis­kostn­að­i.“ 

Ummæli Krist­jáns Þórs eru ekki ekki í full­yrð­inga­formi og ekki alveg ljóst nákvæm­lega hvað hann á við, og af þeim sökum hefur Stað­reynda­vakt Kjarn­ans ekki tekið afstöðu til þess­ara ummæla. 

Auglýsing

Stað­reynda- og sam­fé­lags­vakt Vís­inda­vefs­ins bendir á að það sé rétt hjá heil­brigð­is­ráð­herra ef hann á við það að ekk­ert heil­brigð­is­kerfi bjóði sjúk­lingum alla heil­brigð­is­þjón­ustu gjald­frjálsa. Kostn­að­ar­þátt­taka sjúk­linga í hefð­bund­inni heil­brigð­is­þjón­ustu er alltaf ein­hver í öllum heil­brigð­is­kerf­um. Hins vegar sé mjög mis­jafnt hversu mikil hún er og hvaða þjón­ustu sjúk­lingar taka þátt í að greiða. 

Þegar litið er til hlut­deildar sjúk­linga í heild­ar­kostn­aði við heil­brigð­is­þjón­ust­una á Íslandi kemur í ljós að hann er hærri en í öðrum félags­legum heil­brigð­is­kerfum sem við berum okkur saman við, að Finn­landi und­an­skildu. Þá kemur í ljós að almennt hefur kostn­að­ar­hlut­deild sjúk­linga lækkað á und­an­förnum árum í félags­legum heil­brigð­is­kerf­um. Kostn­að­ar­hlut­deild sjúk­linga á Íslandi hefur hins vegar verið breyti­leg frá ára­bili til ára­bils og heldur hækkað þegar til lengri tíma er lit­ið.“ 

Mis­jafnt hverjir borga og hvað þeir borga

Líkt og fyrr segir eru heim­sóknir til heim­il­is­lækna ókeypis í Dan­mörku og í Bret­landi, á meðan kostn­aður sjúk­lingar er lít­ill á Íslandi, í Sví­þjóð og víðar í Vest­ur­-­Evr­ópu. Þá er mis­jafnt hvort og þá hvaða hópar sjúk­linga njóta gjald­frelsis í heil­brigð­is­þjón­ustu. Á Íslandi eru heim­sóknir barna á heilsu­gæslu gjald­frjáls­ar, og það á við víða ann­ars stað­ar, en sums staðar er líka ókeypis fyrir ung­menni, aldr­aða, fatl­aða og öryrkja að fara til heim­il­is­lækn­is. 

Vís­inda­vef­ur­inn bendir á að í flestum heil­brigð­is­kerfum greiði sjúk­lingar ein­hvern hluta sér­fræði­þjón­ustu sem þeir þiggja utan legu­deilda sjúkra­húsa. „Oft ræðst kostn­aður við sér­fræð­ings­heim­sókn af því hvort um er að ræða til­vísun frá heim­il­is­lækni eða ekki. Með til­vísun frá heim­il­is­lækni er heim­sóknin til sér­fræð­ings­ins þá ýmist ókeypis fyrir sjúk­ling­inn eins og á við í Dan­mörku og Bret­landi, eða mikið ódýr­ari en ella. Hér­lendis er kostn­aður sjúk­lings vegna komu til sér­fræð­ings sá sami, hvort sem sjúk­ling­ur­inn hefur til­vísun frá heim­il­is­lækni eða ekki.“ 

Þá taka kerfi víð­ast hvar þátt í því að greiða sál­fræði­þjón­ustu og tann­lækn­ing­ar, en það hefur ekki verið til­felli hér á landi nema að tann­lækna­þjón­usta barna og aldr­aðra er nið­ur­greidd. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None