Alþingi hefur verið kallað saman í næstu viku, þriðjudaginn 6. desember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.
Ríkisstjórnin fjallaði um fyrirhugaða þingsetningu á fundi sínum í morgun og þar var jafnframt fjallað um framlagningu fjárlagafrumvarps fyrir árið 2017 og tengdra þingmála.
Haft er eftir Sigurði Inga Jóhannssyni forsætisráðherra að nú sé rúmur mánuður liðinn frá kosningum og það sé tímabært að Alþingi komi saman svo tími gefist til þinglegrar meðferðar fjárlaga. „Þótt skammur tími sé til stefnu tel ég að með góðri samvinnu verði hægt að ljúka umfjöllun um þau á tilsettum tíma.“
Auglýsing