Lilja Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, segist vilja sjá stjórn síns flokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna. Það sé orðið tímabært að mynda slíka breiða stjórn. Leggja þurfi áherslu á uppbyggingu innviða í stað þess Evrópusambandsumsóknar, sem ekki væri sátt um. Þetta kom fram í viðtali við hana í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun.
Greint var frá því í gær að Framsóknarflokkurinn og Vinstri græn hafi verið að ræða saman um mögulega samstarfsfleti í stjórnarsamstarfi eða í stjórnarandstöðu. . „Við höfum til að mynda verið að ræða við VG og skoða hvort það væru einhverjir samstarfsfletir hjá okkur. Það vill nú bara þannig til að það er margt mjög spennandi og framsækið þegar þessir flokkar fara til að mynda að tala saman. Það er margt sem sameinar okkur,“ segir Lilja.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, staðfest í gær að flokkur hennar hafi átt í óformlegum viðræðum við Framsóknarflokk og Samfylkingu um félagslegar áherslur sem flokkarnir þrír geti sameinast um hvort sem er við stjórnarmyndun eða í stjórnarandstöðu. Hún sagði þó ótímabært og ekki við hæfi að svara spurningum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórnarmyndarviðræður við Sjálfstæðisflokkinn.
Fréttablaðið greindi hins vegar frá því í gærmorgun að sátt hafi náðst í öllum þeim stóru málum sem steytti á í síðustu tveimur viðræðulotum milli Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar. Þar segir að þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin um hvort hefja eigi aðildarviðræður að Evrópusambandinu að nýju og að ákvæði verði í stjórnarsáttmála um að skoðanir ríkisstjórnarflokkanna á málinu séu afar mismunandi. Þeim verði því í sjálfvald sett hvernig þeir greiði atkvæði um þingsályktun um atkvæðagreiðsluna. Samkvæmt þessu mun málið því verða sett til þingsins í formi þingsályktunar og án fulls stuðnings nýrrar ríkisstjórnar. Það mun svo ákveða hvort atkvæðagreiðslan fari fram eður ei.
Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, staðfesti í Morgunútvarpinu á Rás 2 í gær að viðræður flokks hans, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks væru lengra komnar en fyrri stjórnarmyndunarviðræður. Allir flokkarnir hafi gefið eitthvað eftir frá kosninum. Stjórnarsáttmáli væri hins vegar ekki undirritaður enn sem komið.
Viðræður flokkanna þriggja hófust formlega í gær en Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk formlega stjórnarmyndunarumboð á föstudag.