Skýrsla um umfang skattaskjólseigna hefur verið tilbúin í fjármála- og efnhagsráðuneytinu frá því í byrjun október, en hefur ekki enn komið fyrir Alþingi eða verið gerð opinber með öðrum hætti.
Sérstakur starfshópur sem Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra skipaði, og átti að leggja mat á umfang fjármagnstilfærslna og eignaumsýslu á aflandssvæðum, lauk störfum og skilaði af sér skýrslu í byrjun október. Skýrslan var kynnt í ráðuneytinu þá, en var ekki kynnt fyrir Alþingi fyrir kosningar.
Samkvæmt svari frá fjármálaráðuneytinu við fyrirspurn Kjarnans í byrjun nóvember um niðurstöður starfshópsins var stefnt að framlagningu og opinberri kynningu skýrslunnar þegar nýtt þing kæmi saman.
Nýtt þing kom svo saman í byrjun desember en skýrslan hefur enn ekki verið lögð þar fram. Ekki hafa fengist svör við því í ráðuneytinu hvenær ráðherra hyggst leggja hana fram en allar líkur eru á því að það muni falla í skaut nýs fjármálaráðherra að leggja hana fyrir Alþingi.
Sigurður Ingólfsson hagfræðingur var formaður starfshópsins, sem starfaði frá því í vor. Hópurinn átti að meta umfang á aflandssvæðum og leggja mat á umfang eigna í skattaskjólum. Þá átti hópurinn að meta mögulegt tekjutap hins opinbera af umsvifum af þessu tagi.
Meðal annars fékk hópurinn bandaríska hagfræðinginn dr. James S. Henry til landsins til að funda með hópnum. Hópurinn var skipaður í vor, og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra greindi frá því í byrjun sumars að hann bindi vonir við að hópurinn lyki störfum fyrir lok sumars og að hann myndi í framhaldinu kynna niðurstöðurnar í þinginu.