Brynjar: Engum dytti í hug að gera 25 ára strák að ráðherra

alingi-juli-2015_19277123939_o.jpg
Auglýsing

Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill að nið­ur­stöður próf­kjara hjá Sjálf­stæð­is­flokknum ráði því hverjir verði ráð­herrar flokks­ins, en ekki kynja­sjón­ar­mið eða ein­hverja ákveðna áferð. „Lýð­ræðið er þannig að það var próf­kjör og þar var ákveðin nið­ur­staða. Ég horfi til þess að menn virði nið­ur­stöðu kosn­ing­anna,“ sagði Brynjar meðal ann­ars í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morg­un. 

Mikið hefur verið rætt um stöðu kvenna í Sjálf­stæð­is­flokkn­um, bæði í kringum próf­kjör flokks­ins og nú vegna ráð­herra­skip­un­ar. Aðeins ein kona leiddi lista flokks­ins í kosn­ing­un­um, Ólöf Nor­dal vara­for­mað­ur. Rætt hefur verið um að flokk­ur­inn sæki aðra konu út fyrir þing­flokk­inn til þess að hafa jafn­ari kynja­hlut­föll í ráð­herra­emb­ættum sín­um. Þó hefur einnig verið nefnt að konur innan þing­flokks­ins gætu fengið ráð­herra­emb­ætti, til dæmis Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, rit­ari flokks­ins. 

Brynjar sagði málið snú­ast um það hverjir ræðu „við djobbið núna. Það skiptir auð­vitað máli þegar þú ert orð­inn æðsti hand­hafi fram­kvæmda­valds­ins að þú hafir ákveðna reynslu, ákveðna þekk­ing­u,“ sagði Brynj­ar. 

Auglýsing

„Það myndi engum detta í hug að 25 ára strákur sem kæmi nýr inn á þingið yrði gerður að ráð­herra,“ sagði Brynjar og við­ur­kenndi að þar ætti hann til dæmis við Áslaugu Örnu, sem er 25 ára gömul og nýr þing­mað­ur. „Það ­getur vel verið og eg tel hana sjálfur mjög efni­legan stjórn­mála­mann, og ég held að það sé miklu meira í henni en menn átta sig á. Ég horfi auð­vitað á þetta, maður sem sjálfur hefur ráðið fólk í vinnu. Þá skiptir auð­vitað máli ákveðin reynsla og það að henda fólki í djúpu laug­ina 25 ára nýkomin á þing, ég er ekk­ert viss um að það myndi gera henni einu sinni gagn, ef ég á að vera bara hrein­skil­inn. Það er svo skrýtið að menn eru alveg til­búnir að gera eitt­hvað svona bara til að fá ein­hverja ásýnd eða áferð á þetta en við erum að tala samt um æðsta hand­hafa fram­kvæmda­valds­ins.“ 

Líkt og Kjarn­inn hefur greint frá þykir lík­legt að leitað verði út fyrir þing­flokk­inn að kven­kyns ráð­herra úr röðum Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Nöfn Svan­hildar Hólm Vals­dótt­ur, aðstoð­ar­konu Bjarna Bene­dikts­son­ar, og Ragn­heiðar Rík­harðs­dótt­ur, fyrr­ver­andi þing­flokks­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks, verið nefnd í því sam­hengi. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None