Raddir um að vöxtur ferðaþjónustu skili sér ekki að fullu í ríkiskassann

Ferðamenn við Skógafoss.
Ferðamenn við Skógafoss.
Auglýsing

Raddir heyr­ast um að vöxtur ferða­þjón­ustu sé ekki að skila sér að fullu í hag­vexti á Íslandi né í tekju­aukn­ingu hins opin­bera. Þetta kemur fram í skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum og tekju­tap hins opin­bera sem birt var á föstu­dag.

Í skýrsl­unni kemur fram að áætlað tekju­tap rík­is­sjóðs vegna aflands­fé­laga og skattaund­an­skota sé 56 millj­arðar króna á árunum 2006-2014 og að á hverju ári geti við­bót­artap vegna van­tal­inna skatta verið á bil­inu 4,6 til 15,5 millj­arðar króna.

Í skýrsl­unni er rakið nokkuð ítar­lega hvern áætlað tap rík­is­sjóðs vegna skattsvika eða lög­legrar skatta­snið­göngu var á árunum fyrir hrun, þegar hröð fjár­mála­væð­ing og útrás voru helstu ein­kenni hag­þró­unar á Íslandi.

Auglýsing

Starfs­hóp­ur­inn skoð­aði hins vegar einnig þá hag­þróun sem átt hefur sér stað eftir hrun, þegar hinn öri vöxtur ferða­þjón­ustu hefur verið alls­ráð­andi. Í skýrsl­unni seg­ir: Nú þegar heyr­ast raddir um að hann [vöxtur ferða­þjón­ustu] sé ekki að skila sér að fullu í hag­vexti heima fyrir og tekju­aukn­ingu hins opin­bera. Und­ir­strika ber að eng­inn dómur er lagður á þetta hér. Í ljósi reynsl­unnar er hins vegar ágæt og almenn þum­al­fing­urs­regla, að ef ætl­unin er að fyr­ir­byggja tjónið áður en það verður að veru­leika sé best að beina sjónum framar öðru að þeim greinum milli­ríkja­við­skipta þar sem virð­is­auk­inn er mestur og vex hrað­ast hverju sinn­i."

Hátt í 1,8 millj­­ónir ferða­­manna komu til lands­ins í fyrra, eða um 40 pró­­sent fleiri en árið 2015. Í ný­liðnum des­em­ber fóru nærri 125 þús­und erlendir ferða­­menn um Leifs­­stöð, eða 54 þús­undum fleiri en í sama mán­uði árið áður. Aukn­ingin er 76 pró­­sent á milli­ ára á þessum árs­­tíma. Frá árinu 2010 hefur fjöldi ferða­­manna til lands­ins í des­em­ber sexfald­­ast. Það ár komu alls 488 þús­und ferða­menn til lands­ins, eða rúmur fjórð­ungur þess fjölda sem sótti landið heim á árinu 2016.

Hægt er að lesa frétta­skýr­ingu Kjarn­ans um helstu nið­ur­stöður í skýrslu starfs­hóps­ins hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None