Hæstaréttarlögmaðurinn Borgar Þór Einarsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, nýs utanríkisráðherra Íslands. Borgar Þór hefur störf í ráðuneytinu í dag.
Borgar Þór hefur starfað sem lögmaður frá árinu 2004. Frá árinu 2014 hefur hann starfað hjá CATO lögmönnum, þar sem hann er einnig einn eigenda. Hann var áður eigandi á lögmannsstofunni OPUS og þar áður lögfræðingur í Landsbankanum og á LEX lögmannsstofu.
Borgar Þór hefur áður starfað sem aðstoðarmaður menntamálaráðherra, en hann var aðstoðarmaður Tómasar Inga Olrich árin 2003 til 2004. Hann stýrði starfshópi um mótun stefnu til að draga úr skaðlegum afleiðingum og hliðarverkunum vímuefnaneyslu fyrir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra á síðasta kjörtímabili.
Hann hefur einnig gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, og var meðal annars formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna 2005 til 2007.