Framkvæmdastjóri borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokks segir upp

magnús
Auglýsing

Magnús Sig­ur­björns­son, sem verið hefur fram­kvæmda­stjóri borg­ar­stjórn­ar­hóps Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá árinu 2013, hefur sagt upp störfum hjá flokkn­um. Frá þessu greinir hann í stöðu­upp­færslu á Face­book. Þar seg­ist hann telja að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn eigi mörg tæki­færi í Reykj­ar­vík­ur­borg, en að hann sakni „þeirra frjáls­lyndu gilda sem að flokk­ur­inn ætti að standa fyr­ir.“ Magnús er bróðir Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur, rit­ara Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem kosin var á þing í októ­ber. 

Færsla Magn­úsar í heild sinn­i: 

Á meðan ég fagna nýju rík­is­stjórn­ar­sam­starfi undir for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins þá hef ég sagt upp störfum hjá bæði Sjálf­stæð­is­flokknum og Per­form Group (áður Runn­ing­Ball). 

Á fjórum árum hef ég farið með flokknum í gegnum þrjár kosn­inga­bar­átt­ur, tvo lands­fundi, tals­vert af borg­arstjón­ar­fundum og fullt af öðrum fjöl­breyttum verk­efn­um. Það hefur verið gaman að vera þátt­tak­andi í því að gera Sjálf­stæð­is­flokk­inn að stærsta flokki lands­ins að nýju og koma þeim í rík­is­stjórn tvisvar sinnum í röð. Ein­stak­lega gaman var að fylgj­ast með Áslaugu standa sig vel í próf­kjör­inu í haust og kom­ast svo á þing í októ­ber.

Auglýsing

Borg­ar­málin hafa verið mér kær alveg frá því ég skráði mig í flokk­inn. Ég hef unnið með borg­ar­full­trúum flokks­ins frá því eftir þing­kosn­ingar 2013. Ég tel að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn eigi mörg tæki­færi í borg­inni, en ég sakna þeirra frjáls­lyndu gilda sem að flokk­ur­inn ætti að standa fyr­ir. Ég hef átt mjög ánægju­legt sam­starf við borg­ar­full­trúa flokks­ins og kveð þau með sökn­uði.

Ég vil ann­ars nota tæki­færið og þakka öllum þeim fjöl­mörgu sem ég hef starfað með á síð­ustu árum fyrir sam­starf­ið. Að starfa í póli­tík myndi ég hvorki kalla eðli­legt né venju­legt starf, en það var bæði mjög lær­dóms­ríkt og skemmti­legt. Á móti er ég hvorki þræ­leðli­legur né venju­legur svo það hefur hentað manni mjög vel.

Fyrir jól sagði ég einnig upp störfum hjá Per­form Group (áður Runn­ing­Ball) sem hefur verið litla barnið mitt síð­ustu níu ár. Árið 2007 gróf ég upp starf hjá fyr­ir­tæk­inu sem fól í sér að mæta á fót­bolta­leiki hérna heima og safna töl­fræði í raun­tíma af fót­bolta­leikjum í efstu deild karla. Upp­lýs­ing­arnar selur fyr­ir­tækið mest­megnis til veð­mála­fyr­ir­tækja svo að hægt sé að veðja á slíka leiki á meðan þeir eru í gangi. Stuttu síðar var ég ráð­inn til þess að sjá um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins hér á Íslandi ásamt því að ég sá um Noreg og Fær­eyjar um tíma. Ísland stækk­aði hratt og varð mjög stór bóla í þessum heimi og er enn. Ekki leið á löngu þangað til við vorum byrj­aðir að safna upp­lýs­ingum af öllum fót­bolta­leikjum hér á landi – náðum mest hátt í 1500 leiki á ári.

Nú tekur við næsti kafli. Ég er ekki alveg búinn að ákveða hvernig hann verður en það kemur í ljós fljót­lega. Lífið er jú núna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None