Lilja Björk Einarsdóttir hefur verið ráðin bankastjóri Landsbankans. Hún mun hefja störf 15. mars næstkomandi. Lilja stýrði á árunum 2008 til 2016 starfsemi, eignaumsýslu og endurheimt eigna gamla Landsbanka Íslands, LBI ehf., í London. Á árunum 2005 til 2008 var hún sérfræðingur og síðar framkvæmdastjóri hjá Landsbanka Íslands hf. í London og bar m.a. ábyrgð á daglegum rekstri og uppbyggingu stoðdeilda. Áður vann Lilja hjá ráðgjafarfyrirtækinu Marsh & McLennan frá 2003 til 2005 og vann m.a. verkefni fyrir Ford-bílaframleiðandann, sem sérfræðingur í gerð áætlana og áhættulíkana fyrir vátryggingarsvið og fjárstýringu. Lilja útskrifaðist sem véla- og iðnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1998 og lauk meistaraprófi í fjármálaverkfræði frá Michigan-háskóla í Ann Arbor í Bandaríkjunum árið 2003.
Í tilkynningu segist hún hlakka til að hefja störf. „Ég mun byggja á því góða starfi sem hefur verið unnið síðustu ár. Ég lít framtíð Landsbankans björtum augum og ég mun leggja mitt af mörkum til að bankinn geti áfram veitt viðskiptavinum fyrirmyndarþjónustu á hagkvæman hátt.“
Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs Landsbankans, segir að bankaráðið teljiu að reynsla og þekking Lilju muni nýtast bankanum vel. „Staða Landsbankans er traust og hann hefur á að skipa öflugu starfsfólki. Miklar áskoranir eru í rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja um þessar mundir og samkeppnin er hörð. Lilja er öflugur leiðtogi sem við treystum til að stýra Landsbankanum af festu og bæta enn frekar rekstur hans og afkomu. Stefna bankans er skýr. Landsbankinn er samherji viðskiptavina sinna, hann starfar í sátt við samfélagið og vill vera til fyrirmyndar.“