Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur mótmælt tilskipun Donald Trump Bandaríkjaforseta, um bann við komu flóttafólks og borgara frá sjö ríkjum til Bandaríkjanna, með formlegum hætti. Það gerði Guðlaugur Þór á fundi með Benjamin Ziff, aðstoðarráðherra í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna, í morgun. Ziff er staddur á Íslandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Þar segir að Guðlaugur Þór hafi meðal annars gert grein fyrir þeim afleiðingum sem bannið hefði hérlendis á íslenska ríkisborgara með tvöfalt ríkisfang, sem eiga uppruna sinn að rekja til þeirra ríkja sem bannið nær til.
„Bandaríkin hafa ætíð, og framar flestum öðrum, tekið opnum örmum á móti innflytjendum sem hafa mótað samfélagsgerðina þar í landi með mjög jákvæðum og afgerandi hætti. Tilskipun Bandaríkjaforseta er því mjög fjarri því sem við höfum átt að venjast frá Bandaríkjunum, og þeim gildum sem við eigum sameiginleg. Í því felast mikil vonbrigði og því var mikilvægt að koma skilaboðum á framfæri með skýrum hætti og milliliðalaust. Sá er vinur er til vamms segir," er haft eftir utanríkisráðherra í tilkynningunni.
Guðlaugur Þór mótmælti einnig tilskipun Trump um að ekki megi veita fé til samtaka eða stofnana sem veita upplýsingar um fóstureyðingar eða veita aðgang að öruggum fóstureyðingum erlendis. „Aðgengi að öruggum fóstureyðingum er mikilvægt mannréttinda- og heilbrigðismál og því veldur sú tilskipun Bandaríkjaforseta sömuleiðis miklum vonbrigðum.“