Samfylkingin leggur fram frumvarp um uppboð á kvóta

Oddný Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Oddný Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Auglýsing

Þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar hafa lagt fram frum­varp um útboð á við­bót­ar­þorsk­kvóta. Frum­varpið felur í sér að ef heild­ar­afli þorsks verður auk­inn fyrir næsta fisk­veiðiár skuli sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra bjóða þann við­bót­ar­kvóta út til hæst­bjóð­anda. Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að laga­breyt­ingin sem lögð sé til byggið „ á því að við úthlutun veiði­leyfa sé æski­leg­ast að lög­mál mark­að­ar­ins ráði við nýt­ingu fisk­veiði­auð­lind­ar­inn­ar.“

Þorsk­kvót­inn hefur verið aukin á milli allra fisk­veiði­ára síð­ast­lið­inn ára­tug. Milli fisk­veiði­ár­anna 2014/2015 og 2015/2016 var hann auk­inn um um 21 þús­und tonn og á yfir­stand­andi fisk­veiði­ári um fimm þús­und tonn. Alls hefur kvót­inn verið auk­inn um 114 þús­und tonn frá fisk­veiði­ár­inu 2007/2008 og er nú í 244 þús­und tonn­um.

Var eitt helsta kosn­inga­lof­orð Við­reisnar

Mark­aðs­leið í sjáv­ar­út­vegi var mikið til umræðu í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga. Við­reisn, sem nú situr í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Bjartri fram­tíð, lagði til að mynda mikla áherslu á hana. Í grein sem Bene­dikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisn­ar, skrif­aði á Kjarn­anum 15. júlí 2016 boð­aði hann að afgjald ætti að ráð­ast á mark­aði þar sem ákveð­inn hluti kvót­ans yrði boð­inn upp á hverju ári. Um væri að ræða sára­ein­falda lausn: „Á hverju ári fer ákveðið hlut­­fall kvót­ans á upp­­­boðs­­mark­að, til dæmis 5 til 8%. Tekjur rík­­is­ins ráð­­ast ekki af því hvaða flokkar eru í rík­­is­­stjórn heldur af mark­aðs­að­­stæðum á hverjum tíma.“

Auglýsing

Þessar kröfur voru gefnar eftir þegar rík­is­stjórn var mynd­uð. Í stjórn­ar­sátt­mál­anum segir að kanna eigi kosti þess að „í stað ótíma­bund­innar úthlut­unar verði byggt á lang­tíma­samn­ingum og sam­hliða verði unnið að mati á þeim kostum sem tækir eru, svo sem mark­aðsteng­ingu, sér­stöku afkomu­tengdu gjaldi eða öðrum leið­um, til að tryggja betur að gjald fyrir aðgang að sam­eig­in­legri auð­lind verði í eðli­legu hlut­falli við afrakstur veið­anna.“ Eng­inn tímara­mmi eða útfærsla á þess­ari vinnu var til­tek­in.

Kom­ist frum­varp þing­manna Sam­fylk­ing­ar­innar á dag­skrá, sem er alls ekki víst, munu þing­menn Við­reisnar þurfa að taka afstöðu til þess hvort að setja eigi nýj­an þorsk­kvóta á markað eða ekki.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None