Stefnt er að því að gera jafnréttismat á um 40 prósent þeirra frumvarpa sem ráðherrar ríkisstjórnarinnar munu leggja fram á þessu ári. Um er að ræða hluta af innleiðingu kynjaðrar hagstjórnar og fjárlagagerðar sem á að bæta nýtingu opinberra fjármuna. Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti stöðu innleiðingarinnar á fundi í ríkisstjórn í síðustu viku.
Innleiðingaráætlunin sem nú er unnið eftir var samþykkt í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar þann 19. júní 2015 og gildir til ársins 2019. Sérstök verkefnisstjórn hefur heildarumsjón með innleiðingu hennar, framvindu og eftirliti með framkvæmd. Fulltrúar allra ráðuneyta sitja í verkefnisstjórninni. Í frétt á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins segir að helsta markmið innleiðingaráætlunarinnar sé að samþætta kynjaða fjárlagagerð við stefnumótun og ákvarðanatöku. „Það verður m.a. gert með því að horfa til kynjasjónarmiða við gerð lagafrumvarpa og við ráðstöfun opinbers fjár. Jafnréttismat á lagafrumvörpum þarf að gera hvort heldur sem áhrif þess koma fram á tekju- eða útgjaldahlið frumvarpsins enda hefur öflun opinbers fjár ekki síður áhrif en ráðstöfun þess. Sem dæmi hefur uppbygging skattkerfis mismunandi áhrif á kynin að mörgu leyti þrátt fyrir að löggjöfin sem slík miðist við að sama gildi fyrir kynin.
Samkvæmt áætluninni skal hvert ráðuneyti framkvæma jafnréttismat á frumvörpum sem talin eru hafa miðlungs eða mikil áhrif á stöðu kynjanna. Innan allra ráðuneyta er sömuleiðis unnið að því að greina ákveðið málefnasvið eða málaflokk út frá kynjasjónarmiðum og úrbætur lagðar til ef þörf á. Kyngreind gögn eru ein af lykilforsendum árangursríkrar innleiðingar og því er lagt kapp á að bæta aðgengi að þeim.“
Innleiðing kynjaðrar hagstjórnar og fjárlagagerðar hófst hér á landi í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur, árið 2009. Í henni felst að réttlæti og sanngirni haldist í hendur við efnahagslega velferð. Í ljósi þess að kynin búa enn við ólíkar aðstæður í efnahagslegum, félagslegum og pólitískum skilningi þá er ávinningur af kynjaðri fjárlagagerð talinn margvíslegur, þótt megintilgangur aðferðafræðinnar sé aukið jafnrétti.