Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að biðjast lausnar sem borgarfulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur. Það tilkynnti hún í dag.
Hildur var varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins en við fráfall Ólafar Nordal varð hún þingmaður. „Lausnarbeiðnin verður formlega tekin fyrir á borgarstjórnarfundi þann 7. mars næstkomandi þar sem ég mun óska eftir því við borgarstjórn, með vísan til 2. mgr. 30. gr. sveitarstjórnarlaga, að mér verði veitt lausn frá öllum störfum mínum fyrir borgarstjórn. Þangað til mun ég eftir fremsta megni koma útistandandi málum í góðan farveg.“
Hildur segist hafa haft mikla ánægju af starfi sínu sem borgarfulltrúi en hún telji betra að öll mikilvægu verkefnin sem bíði beggja megin Vonarstrætis fái óskipta athygli. „Ég mun halda áfram að vinna fyrir Reykvíkinga í störfum mínum á Alþingi eins og við á. Ég þakka gott samstarf við borgarfulltrúa og embættismenn borgarinnar undanfarin ár.“
Marta Guðjónsdóttir verður borgarfulltrúi í stað Hildar.
Tveir þingmenn sem voru kosnir í alþingiskosningunum í október síðastliðnum eru enn bæjarfulltrúar. Það eru þær Theodóra S. Þorsteinsdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, og Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Þær eru bæjarfulltrúar í Kópavogi og Mosfellsbæ auk þess að sitja á þingi.