FME gerir alvarlegar athugasemdir við starfsemi Borgunar

Stjórnendur Borgunar ætla að bregðast við athugasemdum FME innan tveggja mánaða.

Kredit kort Borgun
Auglýsing

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) hefur gert athuga­semdir við verk­lag og eft­ir­lit vegna við­skipta við nokkra af við­skipta­vinum Borg­unar hf. á erlendum mörk­uð­um. Meg­in­mark­mið athug­unar FME var að kanna hvort lögum nr. 64/2006 um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka væri fylgt, að því er segir í til­kynn­ingu frá Borg­un. 

Í tengslum við það kann­aði FME verk­lag félags­ins við áreið­an­leikakann­anir á við­skipta­mönn­um, reglu­bundið eft­ir­lit, til­kynn­inga­skyldu og innra eft­ir­lit. Nið­ur­staða athug­unar FME liggur nú fyrir og gerði eft­ir­litið athuga­semd­ir, aðal­lega í tengslum við umfang og nákvæmni áreið­an­leikakann­ana, verk­lag og verk­ferla.



Ekki kemur fram í til­kynn­ing­unni frá Borgun um hvað nákvæm­lega ræð­ir, og þá hefur FME heldur ekki birt nið­ur­stöður athug­unar sinnar á vef sín­um.

„Borgun tekur athuga­semdum FME alvar­lega og mun tryggja í sam­starfi við FME að starf­semin full­nægi betur en nú er ítr­ustu skil­yrðum laga m.t.t. könn­unar á áreið­an­leika við­skipta­manna og skyldum þátt­um, en lítið hefur reynt á túlkun þess­ara reglna, sem eru um ýmis­legt mats­kennd­ar, í íslenskri stjórn­sýslu- og rétt­ar­fram­kvæmd. Borgun hefur þess í stað reitt sig á regl­ur, túlkun og úttektir korta­fé­lag­anna Visa og MasterCard sem byggja á sömu evr­ópu­lögum og hér um ræð­ir. Það er brýnt að taka fram að hvorki er um að ræða grun um pen­inga­þvætti né fjár­mögnun hryðju­verka. Borgun hefur þegar haf­ist handa við að upp­fylla fyr­ir­mæli FME, meðal ann­ars með því að segja upp við­skipta­sam­bandi við nokkra aðila,” segir Haukur Odds­son, for­stjóri Borg­unar í til­kynn­ing­unni.

Auglýsing

Stefnt er að því að allri vinnu af hálfu Borg­unar til að upp­fylla kröfur FME um úrbætur verði lokið innan tveggja mán­aða, segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Rekstur Borg­unar hefur gengið vel á und­an­förnum árum. Hagn­aður árs­ins af reglu­legri starf­semi var undir einum millj­arði króna árið 2013. 

Í fyrra var hann rúm­lega 1,6 millj­arðar króna. En hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins í söl­unni á Visa Europe skiptir mestu máli þegar virð­is­aukn­ing fyr­ir­tæk­is­ins er met­in. Sú sala skil­aði Borgun 6,2 millj­örðum króna. 

Sam­tals verða greiddir 7,7 millj­­arðar króna í arð­greiðslur til eig­enda Borg­unar vegna síð­ustu þriggja ára. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None