Fyrirtækið Efni hf., sem ætlar að byggja upp nýjar markaðs- og söluleiðir fyrir íslensk fyrirtæki sem framleiða hágæða vörur og þjónustu, hefur aukið hlutafé sitt og selt Eyri Invest þriðjung þess. Efni verður eftir það í eigu Heiðu Kristínar Helgadóttur, framkvæmdastjóra félagsins og fyrrverandi stjórnarformanns Bjartrar framtíðar, og Oliver Luckett, samfélagsmiðlasérfræðings sem er stjórnarformaður félagsins, og Eyrir Invest.
Í tilkynningu vegna þessa segir að internetið og aukin hreyfanleiki fólks hafi breytt aðgengi fyrirtækja að mörkuðum og því hvernig neytendur og fyrirtæki nálgist vörur. Því þurfi að beita nýjum aðgerðum við markaðssetningu til að ná til neytenda. „Á sama tíma hefur alþjóðlegur áhugi á Íslandi aldrei verið meiri og möguleikar íslenskra fyrirtækja til að markaðssetja sig og ná til mjög stórs hóps neytenda er því mikill. Fjarlægðin frá mörkuðum er ekki lengur hindrun og Eyrir og Efni sjá mjög mörg tækifæri til þess að nýta sér þessa breyttu heimsmynd og færa íslenskt hugvit og framleiðslu beint til neytenda með hjálp nútímatækni.“
Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris Invest, segir að aðgangur að söluleiðum hafi löngum verið ein stærsta hindrunin í uppbyggingu nýrra fyrirtækja á Íslandi. „Í gegnum tíðina hafa uppkaup á dreifileiðum iðulega verið eina færa leiðin til þess að komast inn á alþjóðlega markaði og ná uppskölun. Á undanförnum árum hafa verið að byggjast upp nýjar markaðs- og söluleiðir í gegnum internetið og netsölu og við teljum að með samstarfi við Efni og víðtæka reynslu og þekkingu Heiðu og Olivers gefist okkur einstakt tækifæri til að taka þátt í þeirri uppbyggingu.“
Heiða segir að Efni sé tilbúið að hlaupa og hefjast handa við þetta stóra verkefni. „Eyrir er frábær samstarfsaðili fyrir okkur Oliver, með langa reynslu og tengingar í íslensku viðskiptalífi sem við munum koma til með að nýta okkur og saman getum við látið góðar hugmyndir verða að veruleika.“