Fjármálaráðherra: Má ekki gera sömu mistökin og árið 2003

Benedikt Jóhannesson segir þarft að ræða endurskipulagningu bankakerfisins og vill ekki gera sömu mistök við einkavæðinguna og árið 2003.

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Auglýsing

Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála­ráð­herra, segir í pistli á vef Við­reisn­ar, þar sem hann fer yfir störfin í stjórn­mál­unum í síð­ustu viku, að ekki megi gera sömu mis­tökin í banka­kerf­inu nú og voru gerð árið 2003 þegar bank­arnir voru seldir einka­að­ilum og miklar breyt­ingar urðu svo í kjöl­farið á umsvifum bank­anna í hag­kerf­inu.

Svo var talað um eig­enda­stefnu rík­is­ins í sér­stakri hálf­tíma umræðu (sem er lík­lega nær 45 mín­út­u­m). Mest var reyndar talað um end­ur­skipu­lagn­ingu banka­kerf­is­ins, sem er vissu­lega áhuga­vert mál, en ekki það sama og eig­enda­stefna. Ég er ekki viss um hvort þing­menn átt­uðu sig almennt á því að ríkið getur sett lag­ara­mma um banka­kerfið óháð því hvort það á hlut í bönk­un­um. Það er aftur á móti þarft að ræða mál eins og aðskilnað við­skipta- og fjár­fest­inga­banka­starf­semi og hver áhrif ein­stakra hlut­hafa mega vera. Miklu skiptir að mis­tökin frá 2003 verði ekki end­ur­tekin þar sem bank­arnir hættu að vera þjón­ustu­stofn­anir og urðu virkir ger­endur í atvinnu­líf­inu sem hluti af við­skipta­blokk­um. Loks þarf að huga að heild­ar­stærð banka­kerf­is­ins, en þetta er ekki það sama og eig­enda­stefna,“ segir Bene­dikt í pistli sínum.

Auglýsing

Eins og greint hefur verið frá þá stendur til að selja um helm­ings­hlut í Arion banka á næstu miss­er­um. Kaup­þing á 87 pró­sent í bank­anum en ríkið 13 pró­sent. Hug­myndin er að líf­eyr­is­sjóðir kaupi 25-30 pró­sent hlut í Arion banka en vog­un­ar­sjóð­irnir – Taconic Capi­tal og Och-ZiffCapi­tal – 20-25 pró­sent hlut. Stefnt var að því að klára kaupin í mars en nú er ljóst að af því verður ekki. Nú er vilji til að gera það, ef af verð­ur, í apríl eða maí.

Fram hefur komið í máli fjár­mála­ráð­herra að það sé ekki ríkið sem sé að selja heldur kröfu­haf­arn­ir.

Kjarn­inn hefur sent Fjár­mála­eft­ir­lit­inu fyr­ir­spurn um vog­un­ar­sjóð­ina og hverjir séu end­an­legir eig­endur þeirra. Fyr­ir­spurn­inni hefur ekki verið svar­að. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None