Vilja hækka bensín- og olíugjald fyrir vegaframkvæmdir

Fimm þingmenn VG hafa lagt fram frumvarp um sérstakar fjáröflunarráðstafanir í vegamálum. Það kveður á um hækkun bensín- og olíugjalds og þar með aukið fé til Vegagerðarinnar.

Steingrímur J. Sigfússon
Auglýsing

Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður VG og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, er einn fimm þing­manna VG sem hafa lagt fram frum­varp á Alþingi um sér­stakar fjár­öfl­un­ar­ráð­staf­anir í vega­mál­um. Hin eru Ari Trausti Guð­munds­son, Kol­beinn Ótt­ars­son Proppé, Lilja Raf­ney Magn­ús­dóttir og Stein­unn Þóra Árna­dótt­ir. 

Sam­kvæmt frum­varp­inu myndu bens­ín­gjöld og olíu­gjöld hækka. Bens­ín­gjald af blý­lausu bens­íni færi úr 43,25 krónum á lítr­ann í 52 krón­ur, og gjöld af öðru bens­íni færu úr 45,85 krónum á lítr­ann í 54,74 krón­ur. Olíu­gjald færi úr 60,10 krónum á lítr­ann í 68,52 krónur á lítr­ann. 

Sam­kvæmt frum­varp­inu myndu fjár­heim­ildir Vega­gerð­ar­innar til nýfram­kvæmda aukast um sem nemur áætl­uðum tekjum vegna þess­ara hækk­ana, eða um 2.000 millj­ónum króna. Þá væri Vega­gerð­inni heim­ilt að færa 500 millj­ónir króna af við­halds- og þjón­ustu­lið yfir í nýfram­kvæmd­ir. 

Auglýsing

„Nú verður ekki lengur við ríkj­andi ófremd­ar­á­stand unað og þar sem ekk­ert bendir til að ný rík­is­stjórn hygg­ist hverfa frá svelti­stefnu í sam­göngu­málum er frum­varp þetta um sér­stakar fjár­öfl­un­ar­ráð­staf­anir í vega­málum á árinu 2017 flutt,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­in­u. 

Þar kemur einnig fram að mark­miðið með þessu sé að „bæta nokkuð úr því ófremará­standi sem við blasir“ í sam­göngu­mál­um. Með breyt­ing­unum væri hægt að setja nokkrar brýnar nýfram­kvæmd­ir, sem séu á gild­andi sam­göngu­á­ætlun en ráð­herra ætli nú að strika út, í útboð og í fram­kvæmd á þessu ári. 

Mikið hafi vantað upp á þessir mörk­uðu tekju­stofnar Vega­gerð­ar­inn­ar, sem gjöldin eru, hafi verið upp­færðir til sam­ræmis við verð­lags­þróun und­an­farin ár. Talið sé að Vega­gerðin hafi úr að spila að minnsta kosti sjö millj­örðum minna en ella vegna þessa. „Senni­lega er þar fremur um van­á­ætlun að ræða en hitt sökum mik­illar umferð­ar­aukn­ingar að und­an­förn­u.“ 

Frum­varpið eigi því að vera skref í átt að færa þetta til betri veg­ar. „Er ekki van­þörf á, sbr. síend­ur­teknar fréttir af ófremd­ar­á­standi á vegum lands­ins og hávær mót­mæli vegna þess nið­ur­skurðar frá sam­þykktri sam­göngu­á­ætlun sem mest er rætt um þessa dag­ana.“ 

Fréttin hefur verið upp­færð. Í upp­runa­legu skjali á vef Alþingi var Stein­grímur J. Sig­fús­son einn skráður flutn­ings­maður frum­varps­ins. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None