Sævar Freyr Þráinsson, fráfarandi forstjóri 365 miðla, hefur verið ráðinn bæjarstjóri á Akranesi. Bærinn greindi frá þessu fyrir skömmu, en Sævar Freyr hefur störf í dag. Hann greindi starfsfólki á 365 miðlum frá því í morgun að hann myndi hætta þar störfum, eftir að tilkynnt var um kaup Vodafone á flestum miðlum 365.
Sævar Freyr var ráðinn bæjarstjóri á lokuðum fundi þann 28. febrúar síðastliðinn. Það var gert samhljóða, en Sævar tekur við starfinu af Regínu Ásvaldsdóttur, sem tók nýlega við starfi sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
Sævar er viðskiptafræðingur með langa stjórnunarreynslu. Hann starfaði sem forstöðumaður og framkvæmdastjóri hjá Símanum um margra ára skeið þar sem hann bar meðal annars ábyrgð á þróun, sölu, markaðsmálum, vörustjórnun, viðskiptastýringu og gagnalausnum. Hann varð forstjóri Símans árið 2007 og gegndi því starfi þar til hann tók við forstjórastöðu hjá 365 miðlum. Sævar á sæti í framkvæmdastjórn viðskiptaráðs og hefur gengt stjórnarformennsku meðal annars hjá fyrirtækjunum Sensa og On-Waves og átt sæti í stjórnum fjölmargra fyrirtækja sem tengjast fjarskiptamálum og hugbúnaði.
Í tilkynningu Akranessbæjar segir að Sævar hafi tekið með virkum hætti í samfélags- og menningarmálum á Akranesi, hann sé varaformaður knattspyrnufélags Íþróttabandalags Akraness, varaformaður Vesturlandsvaktarinnar sem eru hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og stjórnarmaður í góðgerðarfélaginu, Club 71. Þá hefur hann átt sæti í atvinnumálanefnd kaupstaðarins og í stjórn Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar.