Lilja Björk Einarsdóttir hóf störf í dag sem bankastjóri Landsbankans, en hún var ráðin bankastjóri í janúar síðastliðnum.
Lilja stýrði á árunum 2008 til 2016 starfsemi, eignaumsýslu og endurheimt eigna gamla Landsbanka Íslands, LBI ehf., í London. Á árunum 2005 til 2008 var hún sérfræðingur og síðar framkvæmdastjóri hjá Landsbanka Íslands hf. í London og bar m.a. ábyrgð á daglegum rekstri og uppbyggingu stoðdeilda. Áður vann Lilja hjá ráðgjafarfyrirtækinu Marsh & McLennan frá 2003 til 2005 og vann m.a. verkefni fyrir Ford-bílaframleiðandann, sem sérfræðingur í gerð áætlana og áhættulíkana fyrir vátryggingarsvið og fjárstýringu. Lilja útskrifaðist sem véla- og iðnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1998 og lauk meistaraprófi í fjármálaverkfræði frá Michigan-háskóla í Ann Arbor í Bandaríkjunum árið 2003.
Lilja Björk var valin úr hópi 43 umsækjenda, en staðan var auglýst í kjölfar þess að Steinþór Pálsson lét af störfum í lok síðasta árs.