Stýrivextir óbreyttir þrátt fyrir haftalosun

Meginvextir Seðlabanka Íslands verða áfram fimm prósent. Þetta var tilkynnt í morgun.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Auglýsing

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að halda meg­in­vöxtum sín­um, oft nefndir stýri­vext­ir, óbreytt­um. Þetta var til­kynnt í morg­un. Meg­in­vextir bank­ans verða því áfram fimm pró­sent, en margir grein­ing­ar­að­ilar höfðu búist við vaxta­lækk­un, bæði vegna mik­illar styrk­ingar krón­unnar og vegna þeirra skrefa sem stigin voru í átt að losun hafta um liðna helg­i. 

Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar segir að hag­vöxtur hafi verið meiri í fyrra (hann var 7,2 pró­sent) en spáð hafði verið í febr­úar og að vís­bend­ingar séu um áfram­hald­andi kröft­ugan vöxt það sem af er ári. Þá fjölgi störfum hratt, atvinnu­leysi sé lítið og atvinnu­þátt­taka orðin meiri en hún var mest á þenslu­tím­anum fyrir fjár­málakrepp­una sem hófst 2008. Þrátt fyrir að inn­flutn­ingur erlends vinnu­afls vegi á móti fer spenna í þjóð­ar­bú­inu vax­andi.

Verð­bólga mæld­ist 1,9 pró­sent í febr­ú­ar, áþekk því sem hún hefur verið sl. hálft ár. Að því er varðar verð­bólgu­horfur tog­ast sem fyrr á tveir kraft­ar. Hag­vöxtur hefur reynst meiri en spáð var, en á hinn bóg­inn er gengi krón­unnar hærra. Geng­is­hækk­unin og lítil alþjóð­leg verð­bólga vega sem fyrr á móti verð­bólgu­þrýst­ingi af inn­lendum rótum og hefur bilið á milli verð­þró­unar inn­lendra þátta, einkum hús­næð­is­kostn­að­ar, og erlendra þátta auk­ist. Þá hefur aðhalds­söm pen­inga­stefna skapað verð­bólgu­vænt­ingum kjöl­festu og haldið aftur af útlána­vexti og vexti eft­ir­spurn­ar.

Auglýsing

Of snemmt er að segja til um efna­hags­leg áhrif síð­ustu skrefa við losun fjár­magns­hafta. Hugs­an­legt er að betra jafn­vægi skap­ist á milli inn- og útstreymis á gjald­eyr­is­mark­aði en skamm­tíma­hreyf­ingar kunna að aukast eins og sést hafa merki um síð­ustu daga. Seðla­bank­inn mun eftir sem áður draga úr skamm­tíma­geng­is­sveiflum þegar til­efni er til.

Ör vöxtur efna­hags­um­svifa og skýr merki um spennu í þjóð­ar­-­bú­skapnum kalla á pen­inga­legt aðhald svo að tryggja megi verð­stöð­ug­leika til með­al­langs tíma. Á móti kemur að heldur hefur dregið úr óvissu á vinnu­mark­aði.

Traust­ari kjöl­festa verð­bólgu­vænt­inga við verð­bólgu­mark­miðið og hækkun gengis krón­unnar hafa gert pen­inga­stefnu­nefnd mögu­legt að ná lög­boðnu mark­miði um verð­stöð­ug­leika við lægra vaxta­stig en ella. Aðhalds­stig pen­inga­stefn­unnar á kom­andi miss­erum mun ráð­ast af fram­vindu efna­hags­mála og annarri hag­stjórn.“

Til­kynnt var um stór skref í átt að losun hafta á skyndi­legum blaða­manna­fundi á sunnu­dag. Nýjar reglur í gjald­eyr­is­málum tóku síðan gildi í gær­morg­un. Með gild­is­töku þeirra er höftum að mestu lyft af ein­stak­ling­um, fyr­ir­tækjum og líf­eyr­is­sjóðum lands­ins en enn eru hömlur á vaxta­muna- og afleiðu­við­skipt­um. Þá eru enn höft í gildi gagn­vart aflandskrónu­eig­endum sem hafa ekki sam­þykkt til­boð Seðla­banka Íslands um að fara út úr íslensku hag­kerfi á gengi sem felur í sér 20 pró­sent álag ofan á skráð gengi.

Vextir síð­­­­­ast lækk­­­aðir í des­em­ber

Pen­inga­­­­­stefn­u­­­­­nefnd Seðla­­­­­banka Íslands lækk­­­­aði meg­in­vexti bank­ans síð­­­­­ast um 0,25 pró­­sent­u­­stig í des­em­ber 2016 niður í fimm pró­­sent. Þar áður var síð­­asta lækkun um 0,5 pró­­­­­sent­ur í lok ágúst. Meg­in­vextir bank­ans höfðu hald­ist óbreyttir frá því að þeir voru hækk­­­­­aðir í 5,75 pró­­­­­sent í nóv­­­­­em­ber 2015. 

Seðla­­­­­bank­inn lá undir ámæli í fyrra fyrir að lækka ekki vexti í ljósi þess að verð­­­­­bólga hafði nú verið undir verð­­­­­bólg­u­­­­­mark­miði hans síðan í febr­­­­­úar 2014. Hún er enn undir því mark­miði og mælist nú 1,9 pró­­­sent. 

Ákvörðun pen­inga­­­­­stefn­u­­­­­nefnd­­­­­ar­innar í ágúst og des­em­ber hafði þau áhrif að breyt­i­­­­­legir vextir við­­­­­skipta­vina fjár­­­­­­­­­mála­­­­­stofn­anna lækk­­­­uðu og þau kjör sem þær bjóða nýjum lán­tak­end­­­­­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None