Á aðalfundi Landsbankans í dag var samþykkt að bankinn greiði alls 24,8 milljarða króna í arð á árinu 2017. Annars vegar er um að ræða 13 milljarða króna arðgreiðslu vegna rekstrarársins 2016 sem samsvarar um 78 prósent af hagnaði ársins og hins vegar sérstakan arð til hluthafa að fjárhæð 11,8 milljarðar króna. Alls munu arðgreiðslur bankans á árunum 2013-2017 því nema um 107 milljörðum króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum, en íslenska ríkið á ríflega 98 prósent hlut í bankanum.
Á fundinum var greint frá nýrri arðgreiðslustefnu sem bankaráð samþykkti í mars síðastliðnum. Í stefnunni er gert ráð fyrir að reglulegar arðgreiðslur til hluthafa verði að jafnaði 60-80 prósent af hagnaði fyrra árs.
Í samræmi við fjármögnunarstefnu bankans er einnig stefnt að sérstökum arðgreiðslum til þess að auka hagkvæmni í fjármagnsskipan bankans, að því er segir í tilkynningu. Við ákvörðun um arðgreiðslur verði tryggt að bankinn uppfylli lögbundnar kröfur á hverjum tíma og viðhaldi sterkri fjárhagsstöðu.
Eftirtalin voru kjörin aðalmenn í bankaráð Landsbankans:
- Berglind Svavarsdóttir
- Einar Þór Bjarnason
- Helga Björk Eiríksdóttir
- Hersir Sigurgeirsson
- Jón Guðmann Pétursson
- Magnús Pétursson
- Sigríður Benediktsdóttir
Helga Björk Eiríksdóttir er formaður bankaráðsins.
Eftirtalin voru kjörin varamenn í bankaráð:
- Ásta Dís Óladóttir
- Samúel Guðmundsson
Aðalfundur samþykkti óbreytta starfskjarastefnu fyrir bankann. „Þá var samþykkt tillaga um að þóknun til bankaráðsmanna verði 400.000 kr. á mánuði, þóknun til stjórnarformanns verði 700.000 kr. á mánuði og þóknun til varaformanns verði 500.000 kr. Því til viðbótar skuli greiða bankaráðsmönnum 200.000 kr. á mánuði fyrir þátttöku í starfi undirnefnda bankaráðs en auk þess fái formenn undirnefnda bankaráðs greiddar 25.000 kr. á mánuði.“
„Þóknun til varamanns í bankaráði verði 200.000 kr. fyrir hvern fund í bankaráði eða fund með Fjármálaeftirlitinu um hæfismat en þó aldrei hærri en þóknun aðalmanns innan hvers mánaðar. Greiðsla til hvers varamanns skal nema að lágmarki 400.000 kr. á ári,“segir í tilkynningunni.
Á fundinum var samþykkt heimild þess efnis að Landsbankinn eignist eigin hluti allt að 10% af nafnverði hlutafjár. Lægsta og hæsta fjárhæð sem Landsbankinn má reiða fram sem endurgjald fyrir hvern hlut skal vera bókfært virði hvers hlutar, þ.e. samsvara hlutfalli á milli eigin fjár sem tilheyrir hluthöfum bankans og hlutafjár, samkvæmt síðasta birta ársuppgjöri eða árshlutauppgjöri áður en kaup á eigin hlutum fara fram. Heimild þessi gildir fram að aðalfundi Landsbankans árið 2018. Ráðstöfun Landsbankans á eigin hlutum sem keyptir verða á grundvelli þessarar heimildar er háð samþykki hluthafafundar.
Landsbankinn er stærsti banki landsins en heildareignir hans í lok ársins, námu ríflega 1.100 milljörðum króna.