Laun forstjóra Borgunar lækkuð um 40 prósent

Stjórn Borgunar og forstjóri lögðust gegn því að launin yrðu lækkuð og sögðu slíkt fara gegn hagsmunum fyrirtækisins. Ríkið á stærstan hluta í fyrirtækinu eða meira en 60 prósent.

Borgun nýtt
Auglýsing

Kjara­ráð hefur úrskurðað að mán­að­ar­laun Hauks Odds­son­ar, for­stjóra Borg­un­ar, skuli vera rúmar 1,8 millj­ónir króna. Íslenska ríkið er stærsti eig­andi Borg­unar með ríf­lega 60 pró­sent hlut, í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt Íslands­banka.



Í úrskurð­inum segir að horft sé til þess að sam­ræmis sé gætt þegar úrskurðað er um laun þeirra sem undir ráðið falla. „
Í 8. gr. laga um kjara­ráð segir að það skuli við úrlausn mála gæta inn­byrðis sam­ræmis í starfs­kjörum þeim sem það ákveð­ur, og að þau séu á hverjum tíma í sam­ræmi við laun í þjóð­fé­lag­inu hjá þeim sem sam­bæri­legir geta talist með til­liti til starfa og ábyrgð­ar. Við á­kvörðun sína skuli kjara­ráð gæta þess að föst laun fyrir dag­vinnu, ann­arra en for­seta Íslands­, verði ekki hærri en föst laun for­sæt­is­ráð­herra sam­kvæmt 3. gr. Við ákvörðun launa­kjara ­sam­kvæmt 4. gr. lag­anna skuli sér­stak­lega gæta sam­ræmis milli þeirra og þeirra kjara hjá ­rík­inu sem greidd eru á grund­velli kjara­samn­inga ann­ars vegar og ákvarð­ana kjara­ráðs ­sam­kvæmt 3. gr. hins veg­ar. Þá skuli kjara­ráð ætíð taka til­lit til almennrar þró­unar kjara­mála á vinnu­mark­aði. Í 10. gr. lag­anna segir að ráðið skuli taka mál til með­ferðar þegar því þyk­i þurfa og ætíð ef orðið hafa veru­legar breyt­ingar á þeim launum í þjóð­fé­lag­inu sem höfð skulu til við­mið­unar sam­kvæmt lög­unum eða á störfum þeirra sem úrskurð­ar­vald ráðs­ins tekur til­. Kjara­ráð hefur ekki áður ákveðið for­stjóra Borg­unar hf. laun. Með vísan til þess inn­byrð­is­ ­sam­ræmis sem kjara­ráði ber að hafa að leið­ar­ljósi og áður er gerð grein fyrir er við ákvörð­un ­launa­kjara for­stjóra Borg­unar hf. horft til launa­kjara for­stöðu­manna ann­arra fjár­mála- og lána­stofn­ana sem undir kjara­ráð heyra, svo sem banka­stjóra Íslands­banka hf.,“ segir í úrskurð­in­um, en áður hafði ráðið úrskurðað um laun Birnu Ein­ars­dótt­ur, og voru laun hennar lækkuð um 40 pró­sent frá því sem var áður. 

Sam­kvæmt árs­reikn­ingi Borg­unar fyrir árið 2015 námu laun og þókn­anir til Hauks það ár rúmum þremur millj­ónum á mán­uði. Stjórn Borg­unar lagð­ist gegn því að laun for­stjór­ans lækk­uðu veru­lega, að því er segir í úrskurð­in­um, og var slíkt sagt fara gegn hags­munum fyr­ir­tæk­is­ins.

Málið hefur verið í vinnslu síðan í októ­ber á síð­asta ári þegar stjórn Borg­unar var gefin kostur á leggja fram grein­ar­gerð vegna vænt­an­legrar ákvörð­unar kjara­ráðs um launa­kjör for­stjóra Borg­un­ar. Stjórnin lagð­ist alfarið gegn launa­lækk­un­inni og það sama gerði Haukur Odds­son, for­stjóri Borg­un­ar. 

Auglýsing

Þetta hafði engin áhrif á ákvörðun Kjara­ráðs. Horft var til ann­arra fjár­mála-og lána­stofn­ana sem heyra undir kjara­ráð, meðal ann­ars launa­kjara banka­stjóra Íslands­banka, eins og áður seg­ir, og komst ráðið í fram­hald­inu að þeirri nið­ur­stöðu að launin ættu að vera 1,8 millj­ónir á mán­uð­i. 

Nákvæmt­lega til­greint voru ákvörð­un­ar­orð ráðs­ins sme hér seg­ir: 

„Mán­að­ar­laun for­stjóra Borg­unar hf. skulu vera sam­kvæmt launa­flokki 502-140, nú 1.094.455 krón­ur. Að auki skal greiða honum 75 ein­ingar á mán­uði fyrir alla yfir­vinnu og á­lag er starf­inu fylg­ir. Ein­ing er 1% af launa­flokki 502-136, nú 9.572 krón­ur. 

Ein­ingar greið­ast alla mán­uð­i árs­ins, einnig í sum­ar­leyfi. Af því leiðir að ekki er greitt orlofsfé á ein­ing­ar. ­Laun eru miðuð við fullt starf þannig að ekki komi til frek­ari greiðslna nema kjara­ráð úr­skurði um það sér­stak­lega. 

Um almenn starfs­kjör for­stjóra Borg­unar hf. gilda reglur kjara­ráðs um starfs­kjör fram­kvæmda­stjóra félaga sem eru að meiri­hluta í eigu rík­is­sjóðs og dótt­ur­fé­laga þeirra frá 17. nóv­em­ber 2015.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None