Fjármálaeftirlitið hefur hafið undirbúning að því að gera mat á hæfi þriggja nýrra eigenda í Arion banka, sem hafa gefið til kynna að þeir ætli að auka hlut sinn og þar með fara með virkan eignarhlut í bankanum. Þessir hluthafar eru TCA New Sidecar III, Trinity Investments DAC og Sculptor Investments.
Þetta kemur fram í svari fjármálaeftirlitsins við bréf Benedikts Jóhannessonar fjármálaráðherra, sem sendi eftirlitinu bréf með ellefu spurningum um nýja eigendur í bankanum. Fjármálaeftirlitið segir í svari sínu að það sé mat þess að enginn hinna nýju hluthafa fari nú með virkan eignarhlut í bankanum og þess vegna hafi ekki verið framkvæmt neitt mat á hæfi þeirra. Eftirlitið svarar mörgum spurningum ráðherra ekki nema með þeim orðum.
Í svari Fjármálaeftirlitsins kemur fram að allir nýju hluthafarnir eða aðilar þeim tengdir hafi verið meðal kröfuhafa Kaupþings við gerð nauðasamnings félagsins og fara nú með hlut í félaginu. Eftirlitinu sé kunnugt um það að í einhverjum tilvikum hafi verið stofnuð sérstök fyrirtæki eða sjóðir til að halda utan um kaupin á hlutabréfunum.
Fjármálaeftirlitið svarar ekki spurningu ráðherrans um það hvort fyrirtækin eða sjóðirnir hafi haft með sér formlegt samstarf við kaupin og hvort þá þurfi ekki að skoða þau sem eiganda virks eignarhlutar.
Spurningar Benedikts voru eftirfarandi:
- Hvers eðlis eru þau fyrirtæki eða sjóðir sem keypt hafa hlut í Arion banka núna?
- Voru þessi fyrirtæki eða sjóðir öll kröfuhafar í þrotabú Kaupþings?
- Hvaða samninga hafa fyrirtækin gert um frekari kaup á hlutabréfum í Arion banka?
- Var gætt að armslengdarsjónarmiðum við samninga þessara aðila við þrotabúið?
- Eru uppi áform um að skrá hlutabréf í Arion banka á markaði? Ef svo er, hvenær og hvar? Hafa þessi fyrirtæki sem nú hafa keypt hlutabréf í Arion banka komið að þeim undirbúningi?
- Voru stofnuð sérstök fyrirtæki eða sjóðir til þess að halda utan um kaupin á hlutabréfunum í Arion banka? Ef svo er, hvaða skýringar eru á því?
- Hafa einhver þessara fyrirtækja eða sjóða kynnt Fjármálaeftirlitinu áform um frekari fjárfestingar í Arion banka? Ef svo er þá hver og hvenær?
- Hafa þessi fyrirtæki eða sjóðir haft með sér formlegt samstarf við kaupin? Ef svo er, er þá ekki ástæða til þess að skoða þau formlega sem eiganda virks eignarhlutar?
- Séu fyrirtækin eða sjóðirnir einnig kröfuhafar í þrotabú Kaupþings er ljóst að beint og óbeint eignarhald a.m.k. tveggja fyrirtækja er komið yfir 10%. Hefur Fjármálaeftirlitið litið til þessa við mat á fyrirtækjunum sem eigendum virkra eignarhluta?
- Hafa fyrirtækin eða sjóðirnir látið Fjármálaeftirlitinu í té upplýsingar um stærstu hluthafa eða eigendur í sjóðunum?
- Er orðspor einhvers eða einhverra þessara kaupenda með einhverjum hætti líklegt til þess að skaða orðspor Arion banka?