Fjármálaeftirlitið hefur hafið undirbúning að mati á nýjum eigendum í Arion

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra sendi Fjármálaeftirlitinu ellefu spurningar um söluna á hlut í Arion banka, og svör eftirlitsins hafa verið birt opinberlega.

Auglýsing
Benedikt Jóhannesson, fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhannesson, fjármálaráðherra.

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur hafið und­ir­bún­ing að því að gera mat á hæfi þriggja nýrra eig­enda í Arion banka, sem hafa gefið til kynna að þeir ætli að auka hlut sinn og þar með fara með virkan eign­ar­hlut í bank­an­um. Þessir hlut­hafar eru TCA New Sidecar III, Trinity Invest­ments DAC og Sculptor Invest­ments. 

Þetta kemur fram í svari fjár­mála­eft­ir­lits­ins við bréf Bene­dikts Jóhann­es­sonar fjár­mála­ráð­herra, sem sendi eft­ir­lit­inu bréf með ell­efu spurn­ingum um nýja eig­endur í bank­an­um. Fjár­mála­eft­ir­litið segir í svari sínu að það sé mat þess að eng­inn hinna nýju hlut­hafa fari nú með virkan eign­ar­hlut í bank­anum og þess vegna hafi ekki verið fram­kvæmt neitt mat á hæfi þeirra. Eft­ir­litið svarar mörgum spurn­ingum ráð­herra ekki nema með þeim orð­u­m. 

Í svari Fjár­mála­eft­ir­lits­ins kemur fram að allir nýju hlut­haf­arnir eða aðilar þeim tengdir hafi verið meðal kröfu­hafa Kaup­þings við gerð nauða­samn­ings félags­ins og fara nú með hlut í félag­inu. Eft­ir­lit­inu sé kunn­ugt um það að í ein­hverjum til­vikum hafi verið stofnuð sér­stök fyr­ir­tæki eða sjóðir til að halda utan um kaupin á hluta­bréf­un­um. 

Fjár­mála­eft­ir­litið svarar ekki spurn­ingu ráð­herr­ans um það hvort fyr­ir­tækin eða sjóð­irnir hafi haft með sér form­legt sam­starf við kaupin og hvort þá þurfi ekki að skoða þau sem eig­anda virks eign­ar­hlut­ar.

Auglýsing


Spurn­ingar Bene­dikts voru eft­ir­far­and­i: 

  1. Hvers eðlis eru þau fyr­ir­tæki eða sjóðir sem keypt hafa hlut í Arion banka núna?

  2. Voru þessi fyr­ir­tæki eða sjóðir öll kröfu­hafar í þrotabú Kaup­þings?

  3. Hvaða samn­inga hafa fyr­ir­tækin gert um frek­ari kaup á hluta­bréfum í Arion banka?

  4. Var gætt að arms­lengd­ar­sjón­ar­miðum við samn­inga þess­ara aðila við þrota­bú­ið?

  5. Eru uppi áform um að skrá hluta­bréf í Arion banka á mark­aði? Ef svo er, hvenær og hvar? Hafa þessi fyr­ir­tæki sem nú hafa keypt hluta­bréf í Arion banka komið að þeim und­ir­bún­ing­i? 

  6. Voru stofnuð sér­stök fyr­ir­tæki eða sjóðir til þess að halda utan um kaupin á hluta­bréf­unum í Arion banka? Ef svo er, hvaða skýr­ingar eru á því?

  7. Hafa ein­hver þess­ara fyr­ir­tækja eða sjóða kynnt Fjár­mála­eft­ir­lit­inu áform um frek­ari fjár­fest­ingar í Arion banka? Ef svo er þá hver og hvenær?

  8. Hafa þessi fyr­ir­tæki eða sjóðir haft með sér form­legt sam­starf við kaup­in? Ef svo er, er þá ekki ástæða til þess að skoða þau form­lega sem eig­anda virks eign­ar­hlut­ar?

  9. Séu fyr­ir­tækin eða sjóð­irnir einnig kröfu­hafar í þrotabú Kaup­þings er ljóst að beint og óbeint eign­ar­hald a.m.k. tveggja fyr­ir­tækja er komið yfir 10%. Hefur Fjár­mála­eft­ir­litið litið til þessa við mat á fyr­ir­tækj­unum sem eig­endum virkra eign­ar­hluta?

  10. Hafa fyr­ir­tækin eða sjóð­irnir látið Fjár­mála­eft­ir­lit­inu í té upp­lýs­ingar um stærstu hlut­hafa eða eig­endur í sjóð­un­um?

  11. Er orð­spor ein­hvers eða ein­hverra þess­ara kaup­enda með ein­hverjum hætti lík­legt til þess að skaða orð­spor Arion banka?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None