Einkafjárfestar hafa náð völdum í VÍS

Miklar deilur hafa verið í hluthafahópi og í stjórn VÍS að undanförnu, að því er fram kemur í Markaðnum.

VÍS - vátrygginafélag Íslands
Auglýsing

Einka­fjár­festar hafa nú náð völdum í VÍS. Félagið er 23,6 millj­arða króna virði og hefur virðið hækkað um 31 pró­sent á síð­ustu tólf mán­uð­u­m. 

En und­an­farin miss­eri hafa miklar deilur verið í hlut­hafa­hópnum og stjórn, að því er fram kemur í frétta­skýr­ingu í Mark­aðnum í Frétta­blað­inu í dag.

Deil­urnar snú­ast meðal ann­ars um ólíkar áherslur einka­fjár­festa í félag­inu og síðan líf­eyr­is­sjóð­anna. Stærsti hlut­hafi VÍS er Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna með tæp­lega 10 pró­sent hlut. 

Auglýsing

Í Mark­aðnum segir að með kjöri Svan­hildar Nönnu Vig­fús­dótt­ur, fjár­fest­is, sem stjórn­ar­for­manns, hafi einka­fjár­festum tek­ist að ná völdum í félag­inu. Her­dís Fjeld­sted, sem sagði sig nýverið úr stjórn VÍS, taldi sig hafa stuðn­ing sem stjórn­ar­for­maður í félag­inu, en henni var teflt fram af Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna.

„Með kjöri Svan­hildar Nönnu Vig­fús­dótt­ur, fjár­festis og eins af stærstu hlut­höfum VÍS, sem for­manns stjórnar trygg­inga­fé­lags­ins í síð­asta mán­uði hefur einka­fjár­festum í hlut­hafa­hópnum tek­ist að ná völdum í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. Mikil átök hafa sett mark sitt á störf stjórnar VÍS á und­an­förnum miss­erum, sem hafa öðrum þræði snú­ist um ólíkar áherslur ann­ars vegar full­trúa líf­eyr­is­sjóð­anna og hins vegar helstu einka­fjár­festa félags­ins, og birt­ist meðal ann­ars í því að sam­tals hafa fimmtán manns setið í stjórn frá því í árs­byrjun 2015 og fjórir ein­stak­lingar gegnt starfi stjórn­ar­for­manns yfir sama tíma­bil. Jafn tíð stjórn­ar­skipti á svo skömmum tíma er eins­dæmi á meðal félaga sem eru skráð í Kaup­höll­inn­i.“

„Í aðdrag­anda aðal­fundar VÍS var ljóst að ákveð­inn hópur hlut­hafa, sem sam­an­stóð einkum af hjón­unum Svan­hildi og Guð­mundi Erni Þórð­ar­syni, Sig­urði Bolla­syni, fjár­fest­inga­fé­lag­inu Óska­beini og sjóða­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Stefni, vildi ná fram breyt­ingum á stjórn og stefnu félags­ins. Þessi hópur á sam­an­lagt um 27 pró­senta hlut í VÍS. Þá hafði Svan­hildur uppi áform að taka við sem for­maður af Her­dísi Dröfn Fjeld­sted, sem hefur verið studd af Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna, stærsta hlut­hafa VÍS, en hún hafði gegnt þeirri stöðu frá því í nóv­em­ber 2015. Svan­hild­ur, en hún og eig­in­maður hennar komu fyrst inn í hlut­hafa­hóp VÍS 2014 eftir að hafa selt Skelj­ung skömmu áður með millj­arða hagn­aði, átti í því skyni fundi með flestum af stærstu hlut­höfum VÍS þar sem hún útli­staði sínar áherslur og upp­lýsti þá að hún myndi sækj­ast eftir for­mennsku,“ seg­ir í Mark­aðnum.

Á síð­ustu tveimur árum hafa verið fimmtán stjórn­ar­menn í félag­inu, en sam­kvæmt því sem fram kemur í Mark­aðnum þá hefur VÍS áhuga á því að auka við hlut sinn í bank­anum Kviku, en fyrir á félagið 22 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None