Ólafur Ólafsson vill mæta fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd

Ólafur Ólafsson hefur farið þess á leit við formann stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis að fá að tjá sig fyrir nefndinni vegna Hauck & Aufhäuser.

Ólafur Ólafsson.
Auglýsing

Ólafur Ólafs­son hefur óskað eftir því við for­mann stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis að hann fái að tjá sig fyrir nefnd­inni um einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá hon­um. 

Ólafur segir að hann hafi verið bor­inn þungum sökum í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um málið og hann hafi ekki getað haldið uppi vörn­um. Það vill hann gera fyrir nefnd­inni.

Yfir­lýs­ing­una má lesa hér á eft­ir.

Auglýsing

„Ég hef farið þess á leit við for­mann stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis að fá að tjá mig fyrir nefnd­inni um einka­væð­ingu Bún­að­ar­banka Íslands hf. fyrir tæpum fimmtán árum.

Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis kynnti nið­ur­stöðu sína um þátt þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser í kaupum á Bún­að­ar­banka Íslands hf., fyrir stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd þann 29. mars sl. þar sem ég var bor­inn þungum sök­um. Í kjöl­farið hófst mikil fjöl­miðlaum­fjöllun sem byggði á skýrslu nefnd­ar­inn­ar. Við slíkar aðstæður er ógern­ingur að halda uppi vörnum og nauð­syn­legt að gefa sér ráð­rúm til að rýna í ásak­anir sem þar koma fram. Ég gaf sam­dæg­urs út yfir­lýs­ingu þar sem ég árétt­aði að ríkið hefði fengið greitt að fullu fyrir Bún­að­ar­bank­ann og að staðið hefði verið við alla samn­inga. Enn fremur skýrði ég frá því að ég myndi ekki tjá mig um efni skýrsl­unnar fyrr en ég hefði kynnt mér hana.

Það er ekki hlaupið að því að rifja upp tæp­lega fimmtán ára gam­alt mál. Síðan skýrsla rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar kom út hef ég farið yfir öll aðgengi­leg gögn er tengj­ast mál­inu. Ég tel mik­il­vægt að kasta ljósi á þær nýju upp­lýs­ingar sem ég hafði ekki fengið aðgang að áður og nið­ur­stöður eru dregnar af í rann­sókn­ar­skýrsl­unni. Réttur vett­vangur til að bregð­ast við er að mínu mati fyrir stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd Alþing­is, enda var nið­ur­staða rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar kynnt þar. Ég geri mér vonir um að varpa þar ljósi á atburð­ar­rás­ina og svara spurn­ingum sem nefndin kann að beina til mín.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None