Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að salan á Vífilsstaðalandinu til Garðabæjar, fyrir um 558,6 milljónir króna, sé „mjög gott mál“ en stefnt er að uppbyggingu 1.200 til 1.500 íbúða á landinu og mun ríkissjóður fá hlutdeild í sölu á byggingarrétti á svæðinu.
Í færslu á Facebook síðu sinni segir Benedikt að það sé sérkennilegt að Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, hafi ekki mótmælt því fyrr, að heimild væri í lögum til að selja landið. Það hefði hann til dæmis geta gert þegar hann var forsætisráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur óskað eftir sérstökum umræðum við Benedikt um söluna á Vífilsstaðalandinu til Garðabæjar. Um það tilkynnti hann í eigin Facebook-færslu í gær.
„Sumum finnst að við hefðum átt að selja landið til braskara. Það höfðar ekki til mín, þó svo að einhverjir aðrir stjórnmálamenn telji slíkt betri kost, því að við viljum halda i íbúðarverði niðri. Endanlegt söluverð kemur ekki í ljós fyrr en við vitum hvert lóðaverð verður. Ríkið fær bæði greiðslu strax og svo hlutdeild í söluverði þegar líður verða seldar, þannig að samningurinn er mjög sanngjarn. Mér finnst líklegt að það verði margfalt hærra en það sem greitt var beint,“ segir Benedikt í færslu sinni.
Hann bætir svo við að skipulagsvaldið í málinu sé hjá Garðabæ. „Loks má geta þess að Garðabær hef skipulagsvald, en landið hefur verið skilgreint sem útivistarsvæði þannig að við hefðum ekki getað selt öðrum það undir lóðir, því bærinn einn hefur skipulagsvald. Þannig að það er ekki nokkur vafi á því að þetta er góð ákvörðun. Ekkert mælir á móti því að þarna verði seinna byggður spítali, en þá þurfa menn að taka ákvörðun um það fljótlega. Nú er búið að ákveða að byggja spítali búið Hringbraut og við byrjum á því. Það er merkilegt að Sigurður Ingi skuli ekki muna að hann hefur margoft samþykkt heimild í fjárlögum til þess að selja þetta land. Þannig að hann hefur oft fengið tækifæri til þess að mótmæla slíkri sölu, meðal annars sem forsætisráðherra,“ segir Benedikt.