Hagar kaupa Olís

Smásölurisinn hefur keypt allt hlutafé Olíuverzlunar Íslands.

Auglýsing
Hagar hafa fest kaup á öllu hlutafé í Olís.
Hagar hafa fest kaup á öllu hlutafé í Olís.

Hagar hf. hafa í dag, 26. apríl 2017, und­ir­ritað kaup­samn­ing um kaup á öllu hlutafé Olíu­verzl­unar Íslands hf. (Olís) og fast­eigna­fé­lags­ins DGV ehf.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Haga til kaup­hallar.

Til­kynnt var um það í mars að útgerð­ar­fyr­ir­tækin FISK Seafood á Sauð­ár­króki og Sam­herji á Akur­eyri hefðu eign­ast allt hlutafé í Olíu­verzlun Íslands, Olís,  með 50% eigna­hlut hvort eftir að hafa keypt fjórð­ungs­hlut Ein­ars Bene­dikts­sonar og Gísla Bald­urs Garð­ars­son­ar. Hvor þeirra átti  12,5% hlut í félag­inu frá árinu 2012 þegar Fisk og Sam­herji keytu sig inn í það, en þau hafa nú selt, innan við tveimur mán­uðum síð­ar, eins og áður sagði.

Olíu­verzlun Íslands sér­hæfir sig í sölu og þjón­ustu með elds­neyti og aðrar olíu­vör­ur, auk ýmissa nauð­synja­vara til ein­stak­linga og fyr­ir­tækja. Dreifinet félags­ins er víð­tækt og starf­rækir það um 115 starfs­stöðvar á um 50 stöðum á land­inu, aðal­lega undir merkjum Olís, ÓB og Rekstr­ar­lands. Þá á Olís 40% í Olíu­dreif­ingu ehf. DGV ehf. er fast­eigna­fé­lag sem á um 3.000 m fast­eign auk lóða­rétt­inda sem ekki tengj­ast rekstri Olís. Heild­ar­velta Olíu­verzl­unar Íslands var um 31 millj­arður árið 2016. Heild­ar­virði Olís er 15,1 millj­arður króna og vaxta­ber­andi skuldir tæp­lega sex millj­arð­ar. 

Kaup­verð hluta­fjár er því 9,1 millj­arður króna, segir til­kynn­ing­unn­i. 

Auglýsing

„End­an­legt kaup­verð getur þó tekið breyt­ingum vegna afkomu Olís á árinu 2017. Verði EBITDA Olís rekstr­ar­árið 2017 hærri en 2.100 m.kr. kemur til hækk­unar kaup­verðs. Kaup­verð getur þó að hámarki hækkað um 1.000 m.kr. ef EBITDA félags­ins rekstr­ar­árið 2017 verður 2.300 m.kr. eða hærri. EBITDA fyrir rekstr­ar­árið 2016 var 1,9 millj­arð­ar. Kaup­verð verður greitt ann­ars vegar með afhend­ingu á 111 milljón hlutum í kaup­anda og hins vegar með reiðu­fé. Sá hluti kaup­verðs­ins sem greiddur er með reiðufé verður að hluta til fjár­magn­aður með öflun láns­fjár. Við útreikn­ing á kaup­verði er miðað við gengi Haga 47,5. Selj­endur skuld­binda sig til að hvorki selja né fram­selja þá hluti sem þeir fá afhenta í 12 mán­uði frá afhend­ingu. Heild­ar­virði DGV er 1.040 m.kr. en vaxta­ber­andi skuldir eru 640 m.kr. Kaup­verð hluta­fjár DGV er 400 m.kr. og heildar kaup­verð við­skipt­anna því 9.572 m.kr,“ segir í til­kynn­ingu frá Hög­um.

Kaup­samn­ing­ur­inn er gerður með fyr­ir­vara um nið­ur­stöður áreið­an­leika­könn­un­ar, sam­þykki hlut­hafa­fundar fyrir aukn­ingu hluta­fjár og sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Gangi þeir fyr­ir­varar eftir má gera ráð fyrir að gengið verði frá við­skipt­unum undir lok þessa árs.

Ráð­gjafi Haga í við­skipt­unum var Arct­ica Fin­ance.

Sam­hliða kaup­un­um, og áður til­kynntum kaupum félags­ins á Lyfju hf., hefur stjórn Haga ákveðið að víkja frá áður sam­þykktri arð­greiðslu­stefnu félags­ins og leggja til við aðal­fund í júní nk. að ekki verði greiddur út arður árið 2017.

Finnur Árna­son, for­stjóri Haga, fagnar við­skipt­unum og segir þau skapa tæki­færi fyrir Haga. „Þessi samn­ingur er sér­stak­lega ánægju­legur og skapar fjöl­mörg tæki­færi til að bæta þjón­ustu við okkar við­skipta­vini. Rekstur Olís fellur mjög vel að rekstri Haga og skapar ein­stakan grund­völl til sóknar og ekki síður til auk­innar hag­kvæmni í breyttu sam­keppn­isum­hverf­i.“

Bald­vin Þor­steins­son, stjórn­ar­for­maður Olís, tekur í sama streng og segir félagið vera á góðum stað undir hatti Haga. „Við teljum það far­sælt skref til fram­tíðar fyrir Olís að stað­setja það undir öfl­ugum fyr­ir­tækja­hatti Haga hf. Í þessu fel­ast mikil tæki­færi fyrir starfs­fólk Olís til að auka og efla þjón­ustu við við­skipta­vini félags­ins. Olís lítur sam­starfið björtum aug­um,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Mark­aðsvirði Haga er í dag 56,5 millj­arðar króna, miðað við gengið 49, en félagið á og rekur versl­anir undir merkjum Bónus og Hag­kaup, ásamt fleiri smá­sölu­veru­merkj­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None