Gengi bréfa Haga rýkur upp eftir kaup á Olís

Óhætt er að segja að fjárfestar hafi tekið kaupum Haga á Olís vel. Markaðsvirði félagsins jókst um rúmlega þrjá milljarða í dag.

Finnur Árnason, forstjóri Haga, og Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar.
Finnur Árnason, forstjóri Haga, og Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar.
Auglýsing

Gengi bréfa í Högum hækk­aði um tæp­lega 6 pró­sent í dag í við­skiptum upp á 846 millj­ónir króna. Greini­legt er að tíð­ind­unum frá því í gær, þar sem til­kynnt var um kaup Haga á Olíu­verzlun Íslands (Olís), var vel tekið en heild­ar­kaup­verð var ríf­lega níu millj­arðar króna. Félagið var metið á rúm­lega 15 millj­arða en að frá­dregnum vaxta­ber­andi skuldum er verð­mið­inn ríf­lega níu millj­arð­ar. Eign­ar­hlutur Olís í fast­eigna­fé­lag­inu DGV fylgdi einnig með í kaup­unum og var hann met­inn á 400 millj­ón­ir. 

Greitt er fyrir hlut­inn með reiðufé og hluta­bréfum í Hög­um, þar sem við­mið­un­ar­gengið í við­skipt­unum var 47,5. Við lok dags í dag var gengi bréfa félags­ins tæp­lega 52.

Eig­endur Olís voru Sam­herji og Kaup­fé­lag Skag­fið­inga.

End­an­legt verð mun þó ráð­ast því hvernig fram­legðin verður af rekstr­inum á þessu ári, sam­kvæmt til­kynn­ingu Haga til kaup­hallar þar sem fjallað var um við­skipt­in. 

Auglýsing

Fyrir til­kynn­ingu um við­skiptin var mark­aðsvirði Haga ríf­lega 56 millj­arðar króna, en við lokun mark­aða í dag var það 59,8 millj­arð­ar.

Olís sér­hæfir sig í sölu og þjón­ustu með elds­neyti og aðrar olíu­vör­ur, auk ýmissa nauð­synja­vara til ein­stak­linga og fyr­ir­tækja. Dreifinet félags­ins er víð­tækt og starf­rækir það um 115 starfs­stöðvar á um 50 stöðum á land­inu, aðal­lega undir merkjum Olís, ÓB og Rekstr­ar­lands. Heild­ar­velta Olíu­verzl­unar Íslands var um 31 millj­arður árið 2016.

Um miðjan nóv­em­ber í fyrra til­kynnti Hagar síðan um kaup á Lyfju. Fyr­ir­tækið sam­anstendur af móð­ur­fé­lag­inu Lyfju hf. ásamt dótt­ur­fé­lög­unum Heilsu ehf. og Mengi ehf. Lyfja hf. rekur sam­tals 39 apó­tek, útibú og versl­an­ir, auk lyfja­skömmt­un­ar, um land allt undir merkjum Lyfju, Apó­teks­ins og Heilsu­húss­ins.  Heild­ar­velta Lyfju hf. var 9 millj­arðar kr. á árinu 2015 en verð­matið á félag­inu var 6,7 millj­arðar í við­skipt­un­um.

Hagar er orðið mikið smá­sölu­veldi með þessum kaup­um, en fyrir rekur það meðal ann­ars versl­anir undir merkjum Bónus og Hag­kaup.

Í til­kynn­ingu Haga til kaup­hallar í gær kemur fram að fyr­ir­vara um áreið­an­leika­könnun hafi verið aflétt og verð­mið­inn lækk­aður um 50 millj­ón­ir, auk þess sem það komi til skoð­unar að selja félagið Heilsu ehf.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None