Sigurður Atli Jónsson, forstjóri Kviku, hefur tilkynnt stjórn bankans ákvörðun sína um að láta af störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.
Hann hefur verið forstjóri Kviku frá árinu 2011, en þá hét bankinn MP banki. Sigurður Atli leiddi samruna MP banka og Straums árið 2015. Samruninn tókst framar öllum vonum á þessum tíma undir stjórn og leiðsögn Sigurðar Atla. Nýr, sjálfstæður og sérhæfður fjárfestingabanki varð til undir nafni Kviku.
„Núna er rétti tíminn fyrir mig til að gera breytingar,“ er haft eftir Sigurði Atla í fréttatilkynningu. Ekki kemur fram þar hvað hann hyggst gera.
„Það er ánægjulegt hve vel hefur tekist til að búa til nýjan íslenskan banka. Þróun hans hefur tekist einstaklega vel. Einstakur árangur bankans grundvallast á skýrri framtíðarsýn um að vera sjálfstæður og sérhæfður fjárfestingabanki, samþættri stefnulegri áætlun, skipulegri uppbyggingu fyrirtækjamenningar og umfram allt frábæru starfsfólki.
Það er ljóst að þetta verkefni hefur tekist einstaklega vel og framtíð bankans er afar björt. Ársuppgjör Kviku í fyrra og afkoman núna á fyrsta fjórðungi eru til vitnis um það. Slíkar niðurstöður gera mig óneitanlega stoltan sem forstjóra og leiðtoga þessa góða hóps fólks sem ég hef haft ánægju af að starfa með. Ég vil þakka frábærum viðskiptavinum og fyrirtækjum í klasasamfélagi Kviku fyrir góð samskipti og gott samstarf,“ segir í tilkynningunni.
Þar er einnig haft eftir stjórn Kviku að hún sjái á eftir Sigurði Atla og honum er þakkað fyrir vel unnin störf.