Áhrifamenn innan Framsóknarflokks hafa hvatt Sigmund Davíð Gunnlaugsson, þingmann flokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, til að leiða lista Framsóknar og flugvallarvina í sveitarstjórnarkosningunum í maí á næsta ári.
Þetta staðfestir Sigmundur Davíð í samtali við Fréttablaðið í dag. „Það er ekkert launungarmál að málefni sveitarfélaganna og skipulagsmál skipa stóran sess í mínum huga, en þau eru líka nátengd landsmálunum og það er fjölmargt annað á sviði landsmálanna sem mér finnst mikil þörf á, og tækifæri til, að bæta,“ segir Sigmundur Davíð og bætir við að hann hafi skyldum að gegna í sínu kjördæmi og líki þingmennskan vel. Sigmundur Davíð er þingmaður Norðausturkjördæmis.
„Ég geri ráð fyrir að halda mig við landsmálin þótt mér þyki málefni borgarinnar líka mjög áhugaverð og gríðarlega mikilvæg.“
Sigmundur Davíð hóf stjórnmálaþátttöku sína í skipulagsmálum hjá Framsóknarflokknum í borginni, áður en hann bauð sig fram og varð formaður Framsóknarflokksins.