Franski tónlistarmaðurinn Enrico Macias var meðal þeirra sem kom fyrir dómara í gær, þegar aðalmeðferð hófst í máli gegn Landsbankamönnum vegna starfsemi Landsbankans í Lúxemborg. Sagðist hann hafa í áratug lifað við ótta við að missa heimili sitt í kjölfar falls Landsbankans í Lúxemborg. Enn fremur sagði hann að málið allt hefði flýtt fyrir dauða eiginkonu hans, en Macias er 78 ára gamall.
AFP-fréttastofan fjallaði um málið en gert er ráð fyrir að aðalmeðferðin standi til 24. maí.
Ákæran í málinu beinist gegn Björgólfi Guðmundssyni, fyrrverandi formanni bankaráðs Landsbanka Íslands, Gunnari Thoroddsen, fyrrverandi yfirmanni Landsbankans í Lúxemborg, og sjö öðrum einstaklingum sem störfuðu beint eða óbeint fyrir bankann hófst, en aðalmeðferðin fer fram í sakadómi í París. Þeir sem eru ákærðir í málinu eru sakaðir um að hafa brotið gegn grein í frönskum hegningarlögum sem fjallar um loforð um áhættulaus viðskipti.
Málið hefur verið í undirbúningi og rannsókn árum saman. Einn þekktasti rannsóknardómari Frakklands, Renaud Van Ruymbeke, rannsakaði það og skilaði niðurstöðu síðla árs 2014. Skömmu síðar voru níu einstaklingar og lögaðilinn Landsbankinn í Lúxemborg ákærðir í málinu. Samkvæmt frönskum fjölmiðlum geta brotin sem um ræðir leitt að sér allt að fimm ára fangelsisdóma og sekt upp á 375 þúsund evrur, um 43,4 milljónir króna á gengi dagsins í dag.
Í málinu er Landsbankanum í Lúxemborg, Björgólfi Guðmundssyni, Gunnari Thoroddsen og sjö öðrum gefið að hafa blekkt um eitt hundrað aðila á árunum 2006 til 2008. Á meðal annarra sem eru ákærðir eru þrír fyrrverandi yfirmenn hjá Landsbankanum í Lúxemborg; Daninn Torben Bjerregaard Jensen, Svíinn Olle Lindfors og Belginn Failly Vincent.
Flestir þeir aðilar sem telja sig hafa verið blekktir af Landsbankanum eru ellilífeyrisþegar og 22 meint fórnarlömb bankans hafa látist frá því að málið kom upp.
Svikamyllan sem fólkið heldur fram að það hafi verið blekkt til að taka þátt í snýst því um að Landsbankinn hafi fjárfest lánin sem það veitti fólkinu með öðrum hætti en því hafði verið sagt og að staða bankans hafi verið mun verri en þeir sem seldu fólkinu aðkomu að viðskiptunum höfðu haldið fram.
Slitabú Landsbankans í Lúxemborg hélt hins vegar áfram að reyna að innheimta lánin sem veitt voru með þessum hætti og það hefur sett þá sem þau tóku í mikinn fjárhagsvanda.
Langflestir sem tóku þátt í þessum viðskiptum Landsbankans í Lúxemborg eru ekki jafn efnað fólk og Macias og ekki er um jafn háar upphæðir að ræða. Og hluti hópsins fékk ekki greitt út 25 prósent lánsins sem var veitt heldur setti það allt í fjárfestingu hjá Landsbankanum.
Á heimasíðu sem hópurinn heldur út, og kallast www.landsbankivictims .co.uk, segir að hópurinn hafi „tekið þátt í þessari hræðilegu svikamyllu eftir að gengið var á eftir okkur. Tilgangurinn var að hagnast á fjárfestingunni og veita okkur áhyggjulaust ævikvöld og vernda börnin okkar.“ Þar segir enn fremur að virði húsa fólksins hafi verið blásin upp svo þau gætu fengið hærri lán gegn hærri veðum. Þannig gat Landsbankinn bókfært hærri upphæð sem útlán og fékk hærri upphæð til að fjárfesta fyrir í nafni ellilífeyrisþeganna. „Við vorum blekkt,“ segir á heimasíðunni.
Lögmaður Björgólfs Guðmundssonar sagði við RÚV í september 2014 að búið hefði verið að koma því á framfæri við rannsóknardómarann í Frakklandi að Björgólfur hefði ekki haft nein yfirráð yfir Landsbankanum í Lúxemborg. Hann var samt sem áður ákærður í málinu.