Microsoft spáir Ítölum sigri í Eurovison

Spennan magnast fyrir Eurovison í Úkraínu.

Svala Björgvins syngur lagið Paper í Eurovision fyrir Ísland.
Svala Björgvins syngur lagið Paper í Eurovision fyrir Ísland.
Auglýsing

Microsoft hefur spáð fyrir um nið­ur­stöðu í Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva, Eurovi­son. Spáin byggir á raun­tíma­upp­lýs­ingum af vefn­um, sam­fé­lags­miðlum og leit­ar­vélum sem eru síðan pöruð við sögu­leg gögn til að fá hvað áreið­an­leg­ustu nið­ur­stöð­urn­ar.  

Þessi aðferð leiðir það fram, að Ítalía standi uppi sem sig­ur­veg­ari að þessu sinn­i. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Microsoft á Ísland­i. 

Auglýsing

„Fyr­ir­tæki geta nýtt sér sömu reikni­að­ferðir til að ná sam­keppn­is­for­skoti og auka skil­virkn­i. Sam­kvæmt spám reikni­að­ferð­innar er ansi mjótt er á munum á tveimur lík­leg­ustu sig­ur­veg­ur­unum en eins og staðan er í dag eru lík­urnar á að Ítalía beri sigur úr býtum í ár 18% en sænski flytj­and­inn fylgir fast á eftir með 16,8%,“ segir í til­kynn­ing­unni.



Litlar líkur eru á að Svala Björg­vins­dóttir hreppi vinn­ing­inn þetta árið þar sem lag­inu er spáð 0,3% vinn­ings­lík­um, í 30. til 33. sæti, ásamt Hvíta-Rúss­landi, Pól­landi og San Mar­ínó. 

Neðst með 0,1% vinn­ings­líkur eru Tékk­land, Georgía, Ung­verja­land, Írland og Slóvakía. Spáin verður upp­færð að lok­inni und­ankeppn­inni sem fer fram á morg­un, þriðju­dag, og á fimmtu­dag­inn.

Nið­ur­stöð­urnar munu verða upp­færðar eftir að und­ankeppn­unum á þriðju­dag­inn og fimmtu­dag­inn lýkur og er hægt að nálg­ast þær á vefnum

Til að sýna fram á notk­un­ar­mögu­leika nýrrar reikni­að­ferðar (e. algorit­hm) Microsoft, notar tækniris­inn söngvakeppn­ina sem dæmi og spáir til um úrslit og sig­ur­veg­ara keppn­innar með hjálp raun­tíma­upp­lýs­inga. „Reikni­að­ferðir Microsoft gegna mik­il­vægu hlut­verki í þeim staf­rænu breyt­ingum nú standa yfir þvert á atvinnu­vegi og heims­álf­ur. Fyr­ir­tæki af öllum stærðum og gerðum geta notað sömu aðferðir og not­aðar voru til að spá fyrir um nið­ur­stöður Eurovision. Til dæmis við að ákveða hvenær best sé að mark­að­setja nýja vöru eða að takast á við hin ýmsu vanda­mál áður en þau verða að veru­leika,“ segir Heimir Fannar Gunn­laugs­son, fram­kvæmda­stjóri Microsoft á Ísland­i. Getan til að nýta staf­ræn gögn gerir fyr­ir­tækjum kleift að vinna hefð­bundin verk hraðar og á skil­virk­ari hátt og geta þær for­spárað­ferðir sem Microsoft býður upp á verið mik­il­vægar til að sjá tæki­færin á undan sam­keppn­is­að­il­u­m,“ bætir hann við.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent