Þingnefnd stefnir Michael Flynn og krefst gagna

Mikil átök eiga sér nú stað í bandarískum stjórnmálum þar sem tengsl Donalds Trumps við Rússa eru í brennidepli.

Michael Flynn og Jeff Sessions ræða saman við setningarathöfn Donalds Trump í embætti forseta Bandaríkjanna í janúar.
Michael Flynn og Jeff Sessions ræða saman við setningarathöfn Donalds Trump í embætti forseta Bandaríkjanna í janúar.
Auglýsing

Þing­­nefnd njósn­a­­mála á Banda­­ríkja­þingi hef­ur stefnt fyrr­ver­andi þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjaf­an­um Mich­ael Flynn á fund nefnd­­ar­inn­­ar. Ástæðan er sú að Flynn hefur neitað að afhenda gögn sem nefndin telur nauð­syn­legt að fá afhent, til að geta glöggvað sig sam­bandi rúss­neskra stjórn­valda við Flynn og fleiri ein­stak­linga sem voru í bak­landi Don­alds Trump í kosn­inga­bar­átt­unni í fyrra. 

Fram hefur komið að James Comey, sem Trump rak úr emb­ætti yfir­manns alrík­is­lög­regl­unnar FBI í gær eftir að hafa fengið áskorun um það frá Jeff Sessions dóms­mála­ráð­herra, hafði óskað eftir frek­ari fjár­stuðn­ingi vegna rann­sóknar FBI á tengslum fram­boðs Trumps við Rússa, skömmu áður en hann var rek­inn. Það var Jeff Sessions dóms­mála­ráð­herra sem óskaði eftir því að hann yrði rek­inn, en Sessions sjálfur er til rann­sóknar vegna tengsla hans við Rússa.

Öld­unga­­deild­­ar­þing­mað­ur­­inn Rich­­ard Burr, for­maður nefnd­­ar­inn­­ar, gaf út yf­ir­lýs­ingu þessa efn­is í gær­kvöldi, þar sem fram kem­ur að leitað sé gagna sem tengj­­ast rann­­sókn nefnd­­ar­inn­ar á tengsl­um for­­seta­fram­­boðs Trumps Banda­­ríkja­­for­­seta við Rússa.

Auglýsing

Nefnd­in krafð­ist gagn­anna í bréfi sem hún sendi Flynn þann 28. apríl, en Burr seg­ir lög­­­mann Flynn hafa neitað að verða við beiðn­inni.

Flynn sagði af sér 13. fe­brú­­ar, eftir að hafa fengið skipun um að gera það frá Don­ald Trump for­seta og Mike Pence vara­for­seta. Ástæðan var sú að hann hafði ekki greint þeim frá því að hann hefði rætt um við­skipta­þving­anir gagn­vart Rússum við Sergey Kis­lyak, sendi­herra Rúss­lands í Was­hington DC.



Kis­lyak var einnig í sam­bandi við Jeff Sessions, dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, og hitti hann meðal ann­ars í tvígang á fundum fyrir kosn­ing­arnar í nóv­em­ber. Sessions laug því samt að þing­nefnd, eið­svar­inn, að hann hefði ekki verið í neinu sam­bandi við Rússa í aðdrag­anda kosn­inga, en gögn frá leyni­þjón­ust­unni CIA og alrík­is­lög­regl­unni FBI stað­festu að það hefði ekki verið rétt hjá hon­um. 

Tíma­lína atburð­anna, sem stað­festir hafa ver­ið, sem tengj­­ast Sessions og Flynn, er þessi.

  • Hinn 28. febr­­úar í fyrra var Sessions fyrsti þing­­maður Repúblik­ana til að lýsa for­m­­lega yfir stuðn­­ingi við fram­­boð Don­alds Trumps. 

  • Hinn 3. mars greindi Trump frá því að Sessions yrði aðal­­ráð­gjafi hans í örygg­is- og varn­­ar­­málum í fram­­boð­in­u. 

  • Orðrómur um að tölvu­árásir hafi átt sér stað á Demókra­ta­­flokk­inn og helstu stjórn­­endur fram­­boðs Hill­­ary Clinton er stað­­festur með yfir­­lýs­ingu 14. júní frá Demókröt­u­m. 

  • Hinn 18. júlí hittir Sessions send­i­herra Rússa, Sergey I. Kis­lyak, á fundi, eftir fund Repúblik­ana. 

  • Fjórum dögum síð­­­ar, 22. júlí, eru tölvu­­póstar kosn­­inga­­stjóra Demókrata og Hill­­ary Clin­t­on, ásamt fleirum, birtir á vef Wik­i­­leaks. 

  • Hinn 25. júlí lýsir banda­ríska alrík­­is­lög­reglan því yfir að rann­­sókn sé hafin á tölvu­árás­un­­um. Sama dag segir Don­ald Trump í beinni útsend­ingu, í ræðu. „Rús­s­­ar, ef þið eruð að hlusta, ég vona að þið getið birt eitt­hvað af þessum 30 þús­und tölvu­­póstum sem Hill­­ary eydd­i”. 

  • Hinn 8. sept­­em­ber hitti Sessions send­i­herr­ann aft­­ur, að þessu sinni á skrif­­stofu sinni í Was­hington D.C. Mán­uði síðar lýsir Barack Obama, Banda­­ríkja­­for­­seti, því fyrir að Rússar séu að skipta sér af lýð­ræð­is­­legum fram­­gangi kosn­­inga í Banda­­ríkj­un­­um. Don­ald Trump er síðan kos­inn Banda­­ríkja­­for­­seti, 8. nóv­­em­ber

  • Hinn 29. des­em­ber bregst Obama við tölvu­árásum Rússa með refsi­að­­gerðum og vísar rús­s­­neskum erind­rekum úr land­i. 

  • Á svip­uðum tíma ræddi Mich­­ael Flynn við Kis­lyak í síma, og þar voru meðal ann­­ars við­­skipta­þving­­anir gagn­vart Rússum til umfjöll­un­­ar. Sím­talið var hler­að. 

  • Hinn 10. jan­úar á þessu ári var Sessions í þing­inu í Banda­­ríkj­un­um, og svar­aði spurn­ingum eið­svar­inn. Hann sagð­ist aldrei hafa verið í sam­­skiptum við Rússa. 

  • Sessions er skip­aður dóms­­mála­ráð­herra 8. febr­­ú­ar

  • Flynn segir af sér 13. febr­­úar

  • Was­hington Post greinir frá því 1. mars að Sessions hefði átt fund­ina með send­i­herra Rússa, þvert á það sem hann hafði áður haldið fram. Don­ald Trump lýsir strax yfir stuðn­­ingi við Sessions og segir um norna­veiðar að ræða. Hann hafi ekk­ert rangt gert.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent