Niðurstöður verðbólguvæntinga könnunar Seðlabanka Íslands gefa til kynna að verðbólguvæntingar á markaði til skemmri og lengri tíma hafi lækkað lítillega miðað við síðustu könnun bankans sem framkvæmd var í febrúar.
Könnun var framkvæmd dagana 2. til 4. maí. Leitað var til 30 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði, þ.e. banka, lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, verðbréfamiðlana og fyrirtækja með starfsleyfi til eignastýringar. Svör fengust frá 22 aðilum og var svarhlutfallið því 73%.
Verðbólga mælist nú 1,9 prósent og er meginvextir Seðlabankans 5 prósent. Verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands er 2,5 prósent en verðbólga hefur haldist undir því í meira en þrjú ár. Næsti vaxtaákvörðunardagur er 17. maí næstkomandi.
Miðað við miðgildi svara í könnuninni vænta markaðsaðilar um 1,9-2,0% verðbólgu á þessu ári en að hún muni aukast á fyrri helmingi næsta árs og verði 2,2-2,4%. „Þá vænta markaðsaðilar þess að verðbólga verði 2,6% eftir tvö ár og einnig að meðaltali næstu fimm og tíu ár. Á heildina litið lækka verðbólguvæntingar um 0,1-0,3 prósentur milli kannana. Þá gefur könnunin til kynna að markaðsaðilar vænti þess að gengi evru gagnvart krónu verði 111 kr. eftir eitt ár, þ.e. að gengi krónu verði rúmlega 5% hærra en það var við framkvæmd könnunarinnar nú í maí. Er það meiri hækkun en þeir gerðu ráð fyrir í febrúar,“ segir í tilkynningu Seðlabanka Íslands.
Miðað við miðgildi svara í könnuninni vænta markaðsaðilar þess að vextir bankans verði lækkaðir um 0,25 prósentur á öðrum fjórðungi þessa árs. Það samsvarar því að meginvextir bankans lækki úr 5% í 4,75%. Þeir vænta enn frekari lækkunar á fjórða ársfjórðungi en gera hins vegar ráð fyrir því að meginvextirnir verði hækkaðir á ný í 4,75% á öðrum fjórðungi 2018. Þetta eru lægri vextir en þeir væntu í febrúarkönnuninni.
Þegar könnunin var framkvæmd töldu um 43% svarenda taumhald peningastefnunnar vera hæfilegt sem er um 2 prósentum hærra hlutfall en í síðustu könnun. Hlutfall þeirra sem töldu taumhaldið of þétt eða alltof þétt hækkaði um 4 prósentur og var 57%. Enginn þátttakandi taldi taumhaldið of laust eða alltof laust.
Í könnuninni voru aðilar spurðir hvort þeir teldu að húsnæðisverð muni hækka hraðar, jafnhratt eða hægar á næstunni en það hefur gert undanfarið ár. Um 60 prósent svarenda töldu að árshækkun húsnæðisverðs verði hægari næsta hálfa árið en í apríl, en þá mældist árshækkunin 20 prósent. Aðrir töldu að árshækkunin yrði jafn hröð. Hins vegar töldu 95% svarenda að hægja muni á hækkun húsnæðisverðs næsta árið.