Telja að verðbólgudraugurinn haldi sig áfram til hlés

Væntingar eru um það að verðbólga haldist áfram í skefjum og vextir lækki, samkvæmt könnun Seðlabanka Íslands.

Auglýsing
Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.

Nið­ur­stöður verð­bólgu­vænt­inga könn­unar Seðla­banka Íslands gefa til kynna að verð­bólgu­vænt­ingar á mark­aði til skemmri og lengri tíma hafi lækkað lít­il­lega miðað við síð­ustu könnun bank­ans sem fram­kvæmd var í febr­ú­ar. 

Könnun var fram­kvæmd dag­ana 2. til 4. maí. Leitað var til 30 mark­aðs­að­ila á skulda­bréfa­mark­aði, þ.e. banka, líf­eyr­is­sjóða, verð­bréfa- og fjár­fest­ing­ar­sjóða, verð­bréfa­miðl­ana og fyr­ir­tækja með starfs­leyfi til eigna­stýr­ing­ar. Svör feng­ust frá 22 aðilum og var svar­hlut­fallið því 73%. 

Verð­bólga mælist nú 1,9 pró­sent og er meg­in­vextir Seðla­bank­ans 5 pró­sent. Verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands er 2,5 pró­sent en verð­bólga hefur hald­ist undir því í meira en þrjú ár. Næsti vaxta­á­kvörð­un­ar­dagur er 17. maí næst­kom­andi.

Miðað við mið­gildi svara í könn­un­inni vænta mark­aðs­að­ilar um 1,9-2,0% verð­bólgu á þessu ári en að hún muni aukast á fyrri helm­ingi næsta árs og verði 2,2-2,4%. „Þá vænta mark­aðs­að­ilar þess að verð­bólga verði 2,6% eftir tvö ár og einnig að með­al­tali næstu fimm og tíu ár. Á heild­ina litið lækka verð­bólgu­vænt­ingar um 0,1-0,3 pró­sentur milli kann­ana. Þá gefur könn­unin til kynna að mark­aðs­að­ilar vænti þess að gengi evru gagn­vart krónu verði 111 kr. eftir eitt ár, þ.e. að gengi krónu verði rúm­lega 5% hærra en það var við fram­kvæmd könn­un­ar­innar nú í maí. Er það meiri hækkun en þeir gerðu ráð fyrir í febr­ú­ar,“ segir í til­kynn­ingu Seðla­banka Íslands.

Auglýsing

Miðað við mið­gildi svara í könn­un­inni vænta mark­aðs­að­ilar þess að vextir bank­ans verði lækk­aðir um 0,25 pró­sentur á öðrum fjórð­ungi þessa árs. Það sam­svarar því að meg­in­vextir bank­ans lækki úr 5% í 4,75%. Þeir vænta enn frek­ari lækk­unar á fjórða árs­fjórð­ungi en gera hins vegar ráð fyrir því að meg­in­vext­irnir verði hækk­aðir á ný í 4,75% á öðrum fjórð­ungi 2018. Þetta eru lægri vextir en þeir væntu í febr­ú­ar­könn­un­inni.

Þegar könn­unin var fram­kvæmd töldu um 43% svar­enda taum­hald pen­inga­stefn­unnar vera hæfi­legt sem er um 2 pró­sentum hærra hlut­fall en í síð­ustu könn­un. Hlut­fall þeirra sem töldu taum­haldið of þétt eða alltof þétt hækk­aði um 4 pró­sentur og var 57%. Eng­inn þátt­tak­andi taldi taum­haldið of laust eða alltof laust.

Í könn­un­inni voru aðilar spurðir hvort þeir teldu að hús­næð­is­verð muni hækka hrað­ar, jafn­hratt eða hægar á næst­unni en það hefur gert und­an­farið ár. Um 60 pró­sent svar­enda töldu að árs­hækkun hús­næð­is­verðs verði hæg­ari næsta hálfa árið en í apr­íl, en þá mæld­ist árs­hækk­unin 20 pró­sent. Aðrir töldu að árs­hækk­unin yrði jafn hröð. Hins vegar töldu 95% svar­enda að hægja muni á hækkun hús­næð­is­verðs næsta árið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent