Landhelgisgæslan fær nýjar þyrlur en ekki áhöfn

Að öllu óbreyttu getur Landhelgisgæslann aðeins mannað tvær þyrlur samtímis 35 prósent af árinu.

TF-LIF er rúmlega þrjátíu ára og var tekin í notkun 1986.
TF-LIF er rúmlega þrjátíu ára og var tekin í notkun 1986.
Auglýsing

Gert er ráð fyrir því að þyrlur Land­helg­is­gæsl­unnar verði end­ur­nýj­aðar í fjár­mála­á­ætlun 2018-2022. Hins vegar stendur ekki til að auka fjár­veit­ingar til Land­helg­is­gæsl­unnar til þess að manna þyrlurn­ar. Þetta segir í umsögn Land­helg­is­gæsl­unnar með fjár­mála­á­ætl­un­inn­i. 

Sam­kvæmt skýrslu inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins vegna þyrlu­kaupa Land­helg­is­gæsl­unnar sér gæslan um rekstur á þremur þyrl­um. Tvær þyrlur eru leigðar og ein þeirra, TF-LIF, er eign Land­helg­is­gæsl­unn­ar. TF-LIF var tekin í notkun árið 1986 og er því rúm­lega 30 ára gömul en áætl­aður líf­tími björg­un­ar­þyrla er 30 ár. Í fjár­mála­á­ætlun er gert ráð fyrir að festa kaup á þremur nýjum þyrlum og þær verði afhentar á árunum 2021-2023. 

Í skýrslu inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins kemur fram að til þess að Land­helg­is­gæslan geti sinnt lög­boðnu hlut­verki sínu þurfi hún að hafa tvær þyrlur til taks allan sól­ar­hring­inn allt árið um kring. Einnig er þar bent á að það þurfi sjö til átta áhafnir í vakta­vinnu til að manna þyrlurnar allan sól­ar­hring­inn. 

Auglýsing

Miðað við núver­andi fjár­veit­ingar hefur Land­helg­is­gæslan fimm áhafnir til umráða. „Sem þýðir að allt árið er ein áhöfn til taks en aðeins um 35% árs­ins eru tvær áhafnir til taks. Af því leiðir að um 65% árs­ins er ekki hægt að sinna verk­efnum á sjó og 55% árs­ins er ekki hægt að nýta þær þyrlur sem eru til taks vegna skorts á áhöfn­um.“, segir í skýrslu inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Fjölgun ferða­manna fjölgar útköllum

Land­helg­is­gæslan sinnir verk­efnum bæði á land og sjó og fjölg­aði útköllum björg­un­ar­þyrla um 27 pró­sent á árunum 2010-2014. Fjölgun útkalla má meðal ann­ars rekja til fjölg­unar ferða­manna segir í skýrslu inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. 

Í lok árs 2014 voru útköll vegna ferða­manna 89 og gert er ráð fyrir að þeim muni fjölga um 60 pró­sent fram til árs­ins 2020 og vera þá 320. Útköll á sjó hafa breyst lítið und­an­förnum árum. Flest útköll eru vegna slysa um borð í fisk­veiði­skipum og fjöldi þeirra hefur breyst lít­ið. Útköllum vegna skemmti­ferða­skipa hefur fjölgað og búist við að sú þróun haldi áfram á kom­andi árum. 

Sama dag og rætt var um kaup á þyrlum til Land­helg­is­gæsl­unnar á Alþingi þurftu þyrlurnar að sinna fjórum útköll­um. Fram kemur í frétt RÚV að björg­un­ar­þyrlurnar voru kallað út vegna tveggja bílslysa. Annað slysið átti sér stað á Suð­ur­lands­vegi við Reyn­is­fjall þegar hús­bíll fauk út af veg­in­um. Í bílnum voru sex erlendir ferða­menn. Fimm þeirra sluppu ómeiddir en sá sjötti slas­að­ist tölu­vert og var fluttur á Land­spít­al­ann í Foss­vogi. Hitt slysið átti sér stað þegar bíll valt í Vatns­dal og voru fjórir erlendir ferða­menn fluttir slas­aðir til Akur­eyrar

Einnig voru þyrlur kall­aðar út til aðstoðar þegar bátur varð vél­ar­vana norðan af Reka­vík á Horn­ströndum og loks þurfti að koma manni til aðstoðar sem slasast hafði á fæti og lent í sjálf­heldu við eggja­töku á Langa­nes­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent