Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 4,75%.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu peningastefnunefndar nú í morgun.
„Traustari kjölfesta verðbólguvæntinga við verðbólgumarkmiðið og hækkun gengis krónunnar hafa gert peningastefnunefnd mögulegt að ná lögboðnu markmiði um verðstöðugleika við lægra vaxtastig en ella,“ segir í yfirlýsingunni um ástæður þess að ákveðið er að lækka vextina.
Horfur séu á hröðum hagvexti í ár eins og í fyrra, og bæði árin séu umfram það sem spáð var í febrúar. Það skýrist einkum af meiri vexti í ferðaþjónustu en áður var búist við, og einnig segir peningastefnunefnd meiri slökun í aðhaldi opinberra fjármála hafa áhrif.
„Spenna á vinnumarkaði og í þjóðarbúskapnum í heild hefur því aukist þrátt fyrir aukinn innflutning vinnuafls og kröftugan framleiðnivöxt. Á móti aukinni spennu vegur hækkun gengis krónunnar. Hún hefur gegnt lykilhlutverki í aðlögun þjóðarbúsins að búhnykkjum sem rekja má til betri viðskiptakjara og vaxtar ferðaþjónustu.“
Verðbólgan mældist 1,9% í apríl en undirliggjandi verðbólga virðist hins vegar heldur hafa minnkað undanfarna mánuði, að sögn peningastefnunefndar. Gengishækkunin og lítil alþjóðleg verðbólga vega sem fyrr á móti verðbólguþrýstingi af innlendum rótum og hefur bilið á milli verðþróunar innlendra þátta, einkum húsnæðiskostnaðar, og erlendra þátta aukist enn frekar frá síðasta fundi nefndarinnar. „Tveir gagnstæðir kraftar hafa áhrif á verðbólguhorfur. Spenna í þjóðarbúskapnum hefur reynst meiri en spáð var en á móti vegur hærra gengi krónunnar. Verðbólguhorfur fyrir þetta og næsta ár hafa batnað en versnað þegar líður á spátímann.“
Nefndin segir að skýr merki um aukna spennu í þjóðarbúskapnum kalli á peningalegt aðhald svo að tryggja megi verðstöðugleika til meðallangs tíma. Raunvextir bankans hafi hækkað lítillega frá síðasta fundi nefndarinnar og gengishækkun krónunnar feli einnig í sér aukið aðhald.
„Seðlabankinn hefur dregið úr inngripum á gjaldeyrismarkaði í ljósi rúmrar forðastöðu enda er gengishækkunin talin endurspegla undirliggjandi efnahagsþróun. Seðlabankinn mun eftir sem áður grípa inn í á gjaldeyrismarkaði til að draga úr sveiflum eftir því sem hann telur tilefni til. Traustari kjölfesta verðbólguvæntinga við verðbólgumarkmiðið og hækkun gengis krónunnar hafa gert peningastefnunefnd mögulegt að ná lögboðnu markmiði um verðstöðugleika við lægra vaxtastig en ella. Aðhaldsstig peningastefnunnar á komandi misserum mun ráðast af framvindu efnahagsmála og annarri hagstjórn.“