Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, segir borgarlínuna munu geta tengt Vatnsmýrina við nýjan flugvöll, til dæmis í Hvassahrauni, þegar Reykjavíkurflugvöllur hafi vikið fyrir nýrri byggð.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag, en hann segir að flugvöllurinn í Vatnsmýri muni fara í framtíðinni.
Borgarlínan er áformað kerfi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu og er áætlað að 1. áfangi kosti 30-40 milljarða 2019-2022. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa staðið sameiginlega að undirbúningsvinnu hennar.
Dagur segir borgarlínuna munu skapa tækifæri til að þétta byggð í Reykjavík enn frekar en nú sé áformað. Fyrirhugað íbúðarhverfi í Keldnaholti verði t.d. ekki byggt nema með tengingu við borgarlínuna, en áformað er að þar geti búið um fimm þúsund manns í framtíðinni.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Dagur þungann í uppbyggingu Reykjavíkur á næsta áratug verða meðfram borgarlínu.