Sigurður Ingi: Setur hroll að mörgum vegna styrkingar

Formaður Framsóknarflokksins gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir aðgerðarleysi - almennt - en sagði styrkingu krónunnar ógnvekjandi.

Sigurður Ingi Jóhannsson
Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði styrk­ingu krón­unnar að und­an­förnu vera mikið áhyggju­efni, í ræðu sinni í eld­hús­dags­um­ræðum á Alþingi. Það stefnu­leysi sem rík­is­stjórnin hafi sýnt í efna­hags­mál­um, þar sem ráð­herrar tali þvert gegn hvor öðrum, sé ekki til að bæta stöð­una. 



Sig­urður Ingi kom sér­stak­lega inn á gengi krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­mynt­um, en það hefur styrkst veru­lega að und­an­förnu. Banda­ríkja­dalur kostar nú tæp­lega 100 krónur en fyrir rúm­lega einu og hálfu ári kost­aði hann 140 krón­ur, svo dæmi sé tek­ið. 



Sagði Sig­urður Ingi það enn fremur vera áhyggju­efni að vaxta­muna­við­skipti séu hafin á nýjan leik. Aug­ljóst væri að vextir væri of háir og að nýleg til­kynn­ing Seðla­banka Íslands um að hætta kaupum á gjald­eyri væri ekki í takt við stöðu mála. „Hafi verið þörf á að kaupa gjald­eyri fram til þessa, er al­­veg aug­­ljóst að þörf­in er meiri nú en nokkru sinni. Fram hef­ur komið í frétt­um að svo virð­ist sem vaxta­muna­við­skipti séu að ná sér á strik á ný og ég veit fyr­ir víst að það set­ur hroll að mörg­um við þær frétt­­ir. Enda höfðu þau við­skipti ör­ugg­­lega mikið um það að segja, hversu illa fór haustið 2008,“ sagði Sig­urður Ing­i. 



Þá gagn­rýndi hann rík­is­stjórn­ina fyrir að vera alveg verk­lausa, þegar kæmi að stefnu­mörkun í efna­hags­mál­um. Hún hefði tekið við góðu búi, en nú væri hætta á því að stefnu­leysið myndi grafa undan góðu geng­i. „Krón­an er fram­tíð­ar­­gjald­­mið­ill Íslands, seg­ir for­­sæt­is­ráð­herra, fjár­­­mála­ráð­herr­ann hins veg­ar tal­ar niður krón­una hvenær sem færi gefst. Það er merki­­legt að upp­­lifa það, að fjár­­­mála­ráð­herra lands­ins skuli vera svo takt­­laus að tala niður gjald­­miðil þjóð­ar­­inn­ar – á er­­lend­um sem inn­­­lend­um vett­vang­i. Það má vera að ófynd­in fram­­setn­ing hans í ást­ar­­játn­ingu til evr­­unn­­ar, sé fynd­in í þröng­um hópi Við­reisn­­­ar, en ég hygg þó að fleiri séu undr­andi á þess­­ari fram­komu,“ sagði Sig­­urður Ingi í ræðu sinni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent