Peningastefnan „hvorki gæti né ætti“ að stöðva óhjákvæmilega aðlögun

Fundargerð Peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands var birt í dag. Í henni má sjá umræður nefndarmanna um efnahagsþróun í landinu.

Már Guðmundsson
Auglýsing

Í nýj­ustu fund­ar­gerð Pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands, frá fundum nefnd­ar­innar 15. og 16. maí, kemur fram að nefndin telji að „pen­inga­stefnan hvorki gæti né ætti að reyna að stöðva óhjá­kvæmi­lega aðlögun raun­geng­is“ og er þar vitnað til styrk­ingar krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­mynt­u­m. 



Styrk­ingin hefur verið stöðug und­an­farin miss­eri. Banda­ríkja­dalur er nú kom­inn undir 100 krónur (99,7) og evran í 111 krón­ur. Á tveimur árum er styrk­ingin um 30 pró­sent. 



Hinn 17. maí voru meg­in­vextir Seðla­banka Íslands lækk­aður úr 5 pró­sent í 4,75 pró­sent en verð­bólga hefur nú verið í 40 mán­uði undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði og mælist nú 1,7 pró­sent. 

Í nefnd­inni eru Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri, Arnór Sig­hvats­son aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri, Þór­ar­inn G. Pét­urs­son aðal­hag­fræð­ing­ur, Katrín Ólafs­dótt­ir, lektor við HR, og Gylfi Zoega pró­fessor við HÍ.



Fund­ar­gerð­inni seg­ir, þar sem vikið er að styrk­ing­unni krón­unn­ar: „Nefndin ræddi nýlega geng­is­þróun en gengi krón­unnar hafði hækkað nokkuð frá fund­inum í mars. Nefndin taldi jákvætt að dregið hefði úr skamm­tíma­sveiflum í geng­inu frá því í byrj­un a­pr­íl. Sem fyrr voru nefnd­ar­menn sam­mála um að geng­is­hækk­unin end­ur­spegl­aði að mest­u ­leyti efna­hags­lega grunn­þætti sem rekja mætti til við­skipta­kjara­bata og kröft­ugs útflutn­ings­, ­sér­stak­lega í ferða­þjón­ustu, sem skil­uðu sér í veru­legum afgangi á við­skiptum við útlönd. Töld­u þeir að pen­inga­stefnan hvorki gæti né ætti að reyna að stöðva óhjá­kvæmi­lega aðlög­un raun­gengis vegna þessa. Bent var á að frá­viks­dæmi sem birt var í Pen­inga­málum sýndi vel áhrif ­gengis krón­unnar í aðlögun þjóð­ar­bú­skap­ar­ins að búhnykkj­um. Nefnd­ar­menn voru hins veg­ar ­sam­mála um að Seðla­bank­inn ætti eftir sem áður að grípa inn í á gjald­eyr­is­mark­aði til að draga úr sveiflum eftir því sem hann teldi til­efni til,“ segir í fund­ar­gerð­inn­i. 

Þing­menn hafa tölu­vert kallað eftir því að gripið verði til aðgerða til að sporna gegn styrk­ingu krón­unn­ar, sem nú er að farin að hafa nei­kvæð áhrif á mörg útflutn­ings­fyr­ir­tæki. Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, er einn þeirra, en hann hefur kallað eftir því að Seðla­bank­inn lækki vexti „mynd­ar­lega“ til að vinna gegn styrk­ingu krón­unn­ar. 

Auglýsing

Í svip­aðan streng, í umræðum um hvað væri hægt að gera til að vinna gegn styrk­ingu, hefur Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, grip­ið.

Útlit er fyrir að gjald­eyr­is­inn­streymi verði áfram mik­ið, og styrk­ing krón­unnar því lík­lega áfram. Vöxt­ur­inn í ferða­þjón­ustu hefur ýtt undir mik­inn afgang af við­skiptum við útlönd en vöru- og þjón­ustu­jöfn­uður þjóð­ar­búss­ins var jákvæður um 155 millj­arða í fyrra. Útlit er fyrir enn meiri vöxt ferða­þjón­ust­unnar á þessu ári, en á fyrstu mán­uðum árs­ins hafa mun fleiri ferða­menn heim­sótt landið en spár gerðu ráð fyr­ir. 

Í fyrra heim­sóttu 1,8 millj­ónir ferða­manna landið en á þessu ári gera spár ráð fyrir fjölda upp á 2,3 millj­ón­ir. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent