Telja að húsnæðishækkanir geti gengið til baka innan fárra ára

Nefndarmenn í Peningastefnunefnd telja að aðstæður í hagkerfinu gefi ekki tilefni til mikilla vaxtalækkana.

Már Guðmundsson
Auglýsing

Nefnd­ar­menn í Pen­inga­stefnu­nefnd ræddu það sína á milli á fundum nefnd­ar­inn­ar, 15. og 16. maí síð­ast­lið­inn, að hækk­unin á fast­eigna­verði, sem hefur átt sér stað að und­an­förnu, gæti gengið til baka á næstu árum. Þetta kemur fram fram í fund­ar­gerð nefnd­ar­innar frá fyrr­nefndum fund­um, sem birt var í gær. 



Í nefnd­inni eru Már Guð­­munds­­son seðla­­banka­­stjóri, Arnór Sig­hvats­­son aðstoð­­ar­­seðla­­banka­­stjóri, Þór­­ar­inn G. Pét­­ur­s­­son aðal­­hag­fræð­ing­­ur, Katrín Ólafs­dótt­ir, lektor við HR, og Gylfi Zoega pró­­fessor við HÍ.

Fast­eigna­verð hefur hækkað veru­lega og er í sögu­legum hæstu hæð­um. Hvergi í þró­uðum ríkjum hefur það hækkað meira en á Íslandi að und­an­förnu en fast­eigna­verð hefur hækkað um meira en 20 pró­sent á und­an­förnu ári. Ástæðan er meðal ann­ars mikið ójafn­vægi á milli fram­boðs og eft­ir­spurn­ar, en mikil vöntun er á fast­eignum inn á mark­að, einkum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Í fund­ar­gerð­inni er ekki vísað til nafna nefnd­ar­manna, þegar rætt erum umræður þeirra á milli, en fram kemur í fund­ar­gerð­inni að mikil hækkun hús­næð­is­verðs hafi borið á góma. „Töldu þeir lík­legt að hækkun hús­næð­is­verðs umfram almennt verð­lag og laun myndi hugs­an­lega ganga til baka innan fárra ára eða að a.m.k. gæti hækk­unin stöðvast fyrr en nú væri gert ráð fyrir þegar fram­boð hús­næðis hefði náð eft­ir­spurn, enda fast­eigna­verð nálægt sögu­legu hámarki. Ger­ist það án þess að geng­is­hækk­unin að und­an­förnu gangi til baka gæti sam­spil geng­is­þró­unar og hús­næð­is­verðs leitt til hraðrar hjöðn­unar verð­bólg­u,“ segir í fund­ar­gerð­inn­i. 



Ákveðið var að lækka meg­in­vexti úr 5 í 4,75 pró­sent, eftir þessa fundi, en verð­bólgan mælist nú 1,7 pró­sent. Án hús­næð­islið­ar­ins er hún hins vegar nei­kvæð um 2,5 pró­sent. 

Auglýsing

Að mati nefnd­ar­innar voru bæði rök fyrir því að halda vöxtum óbreyttum að þessu sinni og að ­lækka þá um 0,25 pró­sent­ur. „Allir nefnd­ar­menn voru sam­mála um að helstu rökin fyrir að halda vöxtum óbreyttum væri ör vöxtur efna­hags­um­svifa og skýr merki um spennu í þjóð­ar­bú­skapnum sem köll­uðu á pen­inga­legt aðhald til að tryggja verð­stöð­ug­leika til­ ­með­al­langs tíma. Erfitt væri því að sjá að núver­andi staða og nær­horfur köll­uðu á pen­inga­lega örv­un. Að sama skapi væri mik­il­vægt að hafa í huga að tölu­verð slökun væri á aðhald­i op­in­berra fjár­mála og því vand­séð hvaðan hag­stjórn­ar­legt aðhald ætti að koma ef ekki frá­ ­pen­inga­stefn­unn­i. Helstu rök sem fram komu á fund­inum fyrir því að lækka vexti voru þau að raun­vextir bank­ans hefðu hækkað frá síð­asta fundi nefnd­ar­inn­ar. Á sama tíma hefði geng­is­hækkun krón­unn­ar einnig haft í för með sér aukið aðhald að eft­ir­spurn og umsvif­um. Þetta tvennt skapaði svig­rúm til að lækka vext­ina. Nokkur umræða varð um það hversu mikið aðhald væri fólgið í geng­is­hækk­un­inni og töldu sumir nefnd­ar­menn það vera umtals­vert,“ segir í fund­ar­gerð­inn­i. 



Að mati nefnd­ar­manna hefur fyr­ir­huguð hækkun á virð­is­auka­skatti á ferða­þjón­ustu, úr 11 pró­sent í 22,5 pró­sent, sem á að taka gildi 1. júlí á næsta ári, þegar haft þau áhrif á ferða­þjón­ust­una að fyr­ir­tæki eru farin að hægja á fjár­fest­ing­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent